Aðalleikarar
Leikstjórn
Handrit
Vá ég hélt að ég væri að fara á danska mynd sem væri ekkert spes en annað koma á daginn. Það eru fullt af bröndurum í henni sem er hægt að hlægja af. Það er kannski ekki mjög mikill söguþráður en nóg samt til að maður muni eftir henni og langar til að sjá aftur. Hún er vel gerð og kemur á óvart mæli hiklaust með henni.
Humm.. fyrir rúmlega 3 árum kom vinur minn fra danmörk í heimsókn til íslands og gaf mér den eneste ene á spólu.. ég hugsaði með mér oj, þessa mynd langaði mig ekki til að sjá það var ekki fyrr en núna í sumar sem ég drullaðist til ad nenna að horfa á hana og ég varð ásfangin af henni og horfði á hana aftur og aftur endalaust ;)