Náðu í appið
Bönnuð innan Ekki við hæfi mjög ungra barna

Nicholas Nickleby 2002

Fannst ekki á veitum á Íslandi

Every family needs a hero.

132 MÍNEnska
Rotten tomatoes einkunn 78% Critics
The Movies database einkunn 71
/100

Hinn ungi Nicholas og fjölskylda hans lifa þægilegu lífi, eða allt þar til faðir hans deyr og fjölskyldan er peningalaus. Nicholas, systir hans og móðir, fara til London og leita þar ásjár hjá frænda þeirra, Ralph, en hann hefur einungis áhuga á að sundra fjölskyldunni og nýta sér neyð þeirra. Nicholas er sendur í skóla sem rekinn er af grimmum harðstjóra,... Lesa meira

Hinn ungi Nicholas og fjölskylda hans lifa þægilegu lífi, eða allt þar til faðir hans deyr og fjölskyldan er peningalaus. Nicholas, systir hans og móðir, fara til London og leita þar ásjár hjá frænda þeirra, Ralph, en hann hefur einungis áhuga á að sundra fjölskyldunni og nýta sér neyð þeirra. Nicholas er sendur í skóla sem rekinn er af grimmum harðstjóra, Wackford Squeers. Hann flýr vistina með skólabróður sínum Smike, og þeir hefjast handa við að sameina Nickleby fjölskylduna á nýjan leik. ... minna

Aðalleikarar


Charles Dickens er greinilega snillingur og núna er kominn mynd eftir þetta fræga verk. Nicholas Nickleby á fátæka fjölskyldu og þess vegna reynir faðir hans að braska. En faðir hans deyr og þá fer Nicholas, móðir hans og systir í London til að ná í einhvern pening. Nicholas vinnur sem kennari hjá hræðilegu fólki sem lemur börnin sín og vinnumennina. Nicholas hittir vinnumann (Jamie Bell,Billy Elliot,Deathwatch) og þeir flýja frá heimilinu og lenda í mörgum ævintýrum. Myndin er mjög fyndin á pörtum og hún er auðvitað vel skrifuð.
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei

Þegar ég byrjaði að horfa á Nicholas Nickleby þá vissi ég ekkart hvað ég átti í vændum og það sem koma skyldi kom algerlega á óvart. Myndin fjallar um fjölskyldu (móður, son og dóttur) sem búið hefur í sveit alla sína æfi en þegar faðirinn fellur frá þá neiðast þau til þess að flytja í stórborg, sökum peningaskorts. Þau leita hjálpar hjá stórefnuðum frænda sínum, bróður föðurinns, sem tekur þau að sér en er einhvernveginn bara að nota þau til þess að eignast meiri peninga, þó aðallega dótturina. Frændinn byrjar á því að senda strákinn (sem er þó um tvítugt) Nicholas Nickleby í vinnu við heimnavistaskóla. Í skólanum kynnist Nick því hverskonar illmenni frændi hans og hans kunningjar eru og ákveður að taka til sinna ráða og bjóða frænda sínum birginn. Myndin er byggð á sögu Charles Dickens og svipar mikið til sögunnar um Oliver Twist nema að aðal persónan er töluvert eldri í þessari sögu. Sagan er virkilega góð, einlæg og findin og er vel þess virði að horfa á eða jafnvel lesa og verður sjálfsagt mitt næsta lesefni.

Ég mæli eindregið með þessari mynd hún hefur góðan boðskap og sínir manni vel hvernig græðgi getur farið með fólk.
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei
Skrifa gagnrýni
Senda inn

Svipaðar myndir


Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn