Náðu í appið
Bönnuð innan 16 áraMyndin getur valdið ótta hjá eða er ógnvekjandi fyrir ung börn

Boogeyman 2005

Fannst ekki á veitum á Íslandi

Frumsýnd: 8. apríl 2005

You thought it was a just a story... but it's real.

89 MÍNEnska
Rotten tomatoes einkunn 13% Critics
The Movies database einkunn 32
/100

Á yfirborðinu er Tim venjulegur gaur á þrítugsaldri. Hann er með ágætis starf og á í góðu sambandi við kærustuna Jessica. En hann er haldinn áköfum og lamandi ótta, sem hefur háð honum síðan úr barnæsku. Og það versnar með hverjum deginum. Þegar Tim var átta ára gamall, þá gerðist nokkuð hræðilegt. Á hverju kvöldi svæfði pabbi hans hann með... Lesa meira

Á yfirborðinu er Tim venjulegur gaur á þrítugsaldri. Hann er með ágætis starf og á í góðu sambandi við kærustuna Jessica. En hann er haldinn áköfum og lamandi ótta, sem hefur háð honum síðan úr barnæsku. Og það versnar með hverjum deginum. Þegar Tim var átta ára gamall, þá gerðist nokkuð hræðilegt. Á hverju kvöldi svæfði pabbi hans hann með því að segja honum sögu. Margar af sögunum voru á mörkum þess að vera hrollvekjandi, móður hans til ama, en Tim og faðir hans gengu alltaf úr skugga um að allt væri öruggt í herberginu áður en ljósin voru slökkt. Þar til þessa örlagaríku nótt. Nú þarf Tiim að fara úr örygginu og verja Þakkargjörðarhátíðinni hjá foreldrum Jessica, og þá fer heimur hans að hrynja ... minna

Aðalleikarar

Leikstjórn

Handrit


Hún var miklu betri heldur en ég hélt hún væri en sko það vantar alveg alla söguna um þennan boogeyman og það en annars þá brá mér mikið og eins og Grudge ég er nú búinn að sjá bæði ensku og japönsku útgáfuna og feelaði þær mjög mikið en þettar bara fínasta hrillingsmynd mér brá mikið og hún gerðir mig mikið skelkaðann eins og í byrjuninni hún er bara snild en ég gef þessari mynd þrjár og hálfa stjörnu hún fengi fjórar nema það bara vantar allt um boogeyman hvaðan hann kemur og hver hann er og vhernig hann varð til og svona en ég mæli með þessari mynd endilega sjá hana ef þið eruð mikið fyrir hrillingsmyndir og ef þið eruð taugaveikluð:P
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei

Boogeyman sleppur svona fyrir horn. Helsti gallinn við hana og jafnframt það eina sem útilokar möguleika á hærri einkunn frá mér er sá að óvætturinn er ekki skilgreindur nógu vel og svo er saga hans ekkert útskýrð þ.e.a.s. hver hann er og hvaðan hann kemur frá. Fyrir utan það þá er þessi mynd er klisja þó ekki leiðinleg klisja en hún fellur í samskonar hrollvekjugeira og t.a.m. Ring og Grudge en mér fannst nú þessi mynd skárri heldur en þær. Ég varð óttasleginn í nokkrum atriðunum, myndin er vel leikstýrð og sagan hangir vel saman þó að henni skortir á köflum eitthvað almennilegt vit. Svo veit ég ekki hvort að ég á að flokka þessa mynd Boogeyman sem gamanmynd eða ekki af því að fólkið sem var með mér í salnum í Kringlubíói hló heilmikið!? Allavega, ekki alslæm mynd en virkar bara ekki alveg nógu vel. Tvær stjörnur, hæfileg einkunn.
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei

Mér fannst Boogeyman byrja alveg vel og brá mér nokkuð mikið í fyrsta atriðinu en annars var söguþráðurinn frekar asnalegur finnst mér myndin í heildina var allt í lagi, alveg horfanleg.


En myndin fjallar um Barry Watson (man ekki hvað hann hét í myndinni) sem trúir á Boogeyman og fer að verða var við hann. Þegar hann var lítill var pabbi hans tekinn af the Boogeyman og hann jafnaði sig aldrei almennilega á því. Enginn trúði honum auðvitað þannig hann var einn á báti nema hann átti fallega kærustu sem hugsaði vel um hann. Eftir lát móður hans fer hann og dvelur 1 nótt í gamla húsinu og þá gerist margt.
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei

Þetta er ágætis mynd, en ég myndi aldrei mæla með henni. Söguþráðurinn er mjög óskýr og myndin er mjög ílla klipt - aldrei getur verið tekið úr sama sjónarhorni og það er næstum ekkert ljós, ég ætla ekki að eiða einum af 800 kr.- mínum í bíomiða, og ég ætla ekki að mæla með að fara á BoogeyMan með fjölskyldu og vinum mínum, en eins og ég sagði áðan, þetta er bara ágætis mynd, ef þú ert ekki hartaveik(ur) og nennir að bíða þegar ekkert merkilegt er á skjá.
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei

Þessi mynd er valla virði þess að skrifa eitthvað mikið um nema að þetta er bara enn ein ömurlega bandaríska bregðumyndin.. allavega að mínu mati
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei
Skrifa gagnrýni
Senda inn

Svipaðar myndir


Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn