Myrkrið umvefur bæinn Barrow í Alaska í heilan mánuð á ári hverju. Skuggalegur hópur af blóðþyrstum vampírum hefur komist að þessu og ætlar sér að njóta lífsins í þessari skuggaparadís. Það eina sem stendur á milli óvættanna og bæjarbúa eru hjónin, lögregluyfirvöldin í bænum, þau Even Oleson og Billy Kitka.