Náðu í appið
27 Dresses

27 Dresses (2008)

"This January, always a bridesmaid, never a bride."

1 klst 51 mín2008

Jane (Katherine Heigl) byrjaði feril sinn sem brúðarmær þegar hún var lítil stelpa.

Rotten Tomatoes40%
Metacritic47
Deila:
Öllum leyfð Öllum leyfð

Söguþráður

Jane (Katherine Heigl) byrjaði feril sinn sem brúðarmær þegar hún var lítil stelpa. Hún er hin fullkomna brúðarmær, passasöm, umhyggjusöm og setur þarfir annarra alltaf framyfir eigin þarfir. Við fullorðinsaldur hefur hún líka verið brúðarmær 27 sinnum en aldrei fengið að vera brúðurin. Það hjálpar ekki til að hún er bálskotin í yfirmanni sínum, George (Edward Burns) sem sýnir henni engan áhuga. Loksins þegar Jane ætlar að játa ást sína fyrir George þarf hún að horfa upp á það þegar hann fellur fyrir systur hennar, Tess (Malin Akerman). Tess vinnur í Mílanó sem módel og ætlaði bara að heimsækja systur sína í stuttan tíma. Samband Tess og George er fljótt að þróast og það kemur að því að parið trúlofar sig, Jane til mikils hryllings. Og þá hefst undirbúningur brúðkaupsins. Jane stendur frammi fyrir því að verða brúðarmær í 28. skiptið og í þetta sinn horfa á eftir draumaprinsinum sínum giftast systur sinni.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Fox 2000 PicturesUS
Spyglass EntertainmentUS
Dune Entertainment IIIUS

Gagnrýni notenda (2)

Fín mynd

 Mér fannst þessi mynd mjög skemmtileg og Katherine Heigl er frekar góð gaman leikona. Mynd þessi er mjög oft fyndin á köflum en samt mjög döpur að mínu mati.Flestir leikaranir stand...

Æðisleg mynd

 Þessi mynd er óborganlega fyndinn gamanmynd sem kemur skemmtilega á óvart...Hún fjallar um Jane sem er besta brúðarmær sem nokkur brúður getur óskað sér...Hún sér um allt kökuna,...