Náðu í appið
Allt gott

Allt gott (1992)

"Frumsýnd á páskadag"

34 mín1992

Myndin er byggð á endurminningum höfundar og gerist á Selfossi á þeim tíma þegar eplalyktin var ilmur jólanna og á Íslandi ríktu höft í innflutningi munaðarvöru frá útlöndum.

Deila:

Söguþráður

Myndin er byggð á endurminningum höfundar og gerist á Selfossi á þeim tíma þegar eplalyktin var ilmur jólanna og á Íslandi ríktu höft í innflutningi munaðarvöru frá útlöndum. Sagan segir frá tveimur sjö ára strákum, Jóa og Daníel, og ráðabruggi þeirra til að höndla þau verðmæti sem þóttu toppurinn á tilverunni. Þeir eiga sér þá ósk heitasta að fá hvítt amerískt tyggjó. Í kjölfarið reyna þeir að ná sambandi við Guð og dreymir um að hann geti hlutast til um að þeir verði ekki útundan í tilverunni. Einnig kemur við sögu kaupmannsfjölskylda sem virðist hafa úr meiru að spila en sauðsvartur almúginn.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar