Náðu í appið
The House Bunny

The House Bunny (2008)

I Know What Boys Like

"Hún fer þangað sem engin Playboy-kanína hefur farið áður - í háskóla!"

1 klst 37 mín2008

Shelley Darlington (Anna Faris) er vinsæl kanína á Playboy setrinu.

Rotten Tomatoes43%
Metacritic55
Deila:
7 áraBönnuð innan 7 ára
Ástæða:KynlífKynlíf

Söguþráður

Shelley Darlington (Anna Faris) er vinsæl kanína á Playboy setrinu. Hana dreymir um að fylla miðjuopnu Playboy og vonar að hún fái draum sinn uppfylltan í 27 ára afmælisgjöf. En þar sem 27 mannsár eru 59 kanínuár er henni þess í stað vísað burt af setrinu. Shelley leitar þá í ofboði að nýju heimili og fjölskyldu í Beverly Hills. Eftir þónokkra leit sannfærir hún systrafélagið Zeta Alpha Zeta í háskóla einum í Los Angeles um að hún geti aðstoðað þær í stríðinu við systrafélagið Phi Iota Mu um nýja meðlimi, en án þrjátíu nýrra meðlima getur félagið ekki starfað áfram. Hún kennir þessum hópi lúða og proffa að nota kvenleika sinn til að laða að stráka og þar með nýja meðlimi. En Zeta Alpha Zeta systurnar snúast fljótlega upp í andhverfu sína og standa nú fyrir allt það sem þær fyrirlitu sjálfar. Sjálf veit Shelley ekki hvert skal stefna. Hvað ef Hugh Hefner hringir og býður henni miðjuopnuna? Getur hún þá nokkurn tíma fangað hjarta Olivers (Colin Hanks), eina góðhjartaða mannsins sem hefur sýnt henni áhuga? Hver er raunveruleg fjölskylda þessa munaðarleysingja og fyrir hvað vill hún standa? Hún veit að best er að vera maður sjálfur, en hver er það?

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Alta Loma EntertainmentUS
Columbia PicturesUS
Relativity MediaUS
Happy Madison ProductionsUS