Saga um stofnendur samskiptavefsíðunnar Facebook. Haustnótt eina árið 2003, settist Harvard nemandinn og forritunarsnillingurinn Mark Zuckerberg niður við tölvuna sína til að byrja að vinna að nýrri hugmynd. Hugmyndin vex upp í að verða alheims samfélagskerfi, og bylting í samskiptum. Sex árum og 500 milljón "vinum" síðar er Mark Zuckerberg orðinn yngsti bandaríski milljarðamæringur í sögunni...en velgengnin hefur líka í för með sér persónuleg og lagaleg vandamál.
Þessi mynd er alveg fín en rosalega ofmetin.
það eru allir að tala um að þessi mynd sé algert meistaraverk en hún er bara ágæt afþreying.
Jessie Eisenberg er frekar pirrandi sem Mark Zuc…
Þessi mynd er alveg fín en rosalega ofmetin.
það eru allir að tala um að þessi mynd sé algert meistaraverk en hún er bara ágæt afþreying.
Jessie Eisenberg er frekar pirrandi sem Mark Zuckerberg en annars eru hinir leikararnir alveg fínir.
Kannski horfði ég á hana með of miklum væntingum.
Þannig að stillið væntingarnar rétt og fáið góða afþreyingu.
6/10
Ég verð að vera ósammála langflestum með The Social Network. Mér fannst hún ekki svona góð. Það var kannski ekkert galið hjá David Fincher að ætla að kvikmynda uppruna Facebook en ég…
Ég verð að vera ósammála langflestum með The Social Network. Mér fannst hún ekki svona góð. Það var kannski ekkert galið hjá David Fincher að ætla að kvikmynda uppruna Facebook en ég hefði viljað sjá betri mynd úr þessu. Söguþráðurinn verður ekki athyglisverður fyrr en það fer að líða á seinni hlutann og Jesse Eisenberg er ekki að standa sig, hann gerir sína túlkun á Mark Zuckerberg stirða, yfirborðskennda og pirrandi og ég skil ekki þetta lof sem hann er að fá. Mér fannst samt þessi mynd allt í lagi, mér leiddist ekkert og hún verður ágæt undir lokin en hún á ekki allar þessar viðurkenningar og óskara skilið. Góð tilraun hjá David Fincher og The Social Network fær tvær stjörnur en hún er ekki nærri því eins góð og Fight Club.
Eins og margir aðrir var ég ekkert spennt yfir einhverri mynd um facebook þegar ég heyrði fyrst um The Social Network fyrst. En eftir að hafa séð þessa mynd get ég staðfest að hún sé alg…
Eins og margir aðrir var ég ekkert spennt yfir einhverri mynd um facebook þegar ég heyrði fyrst um The Social Network fyrst. En eftir að hafa séð þessa mynd get ég staðfest að hún sé algjör snilld. Ótrúlegt en satt er hún áhugaverð, fyndin og bara allt annað en maður hélt hún yrði.
Ég verð að vera sammála öðrum kvikmyndagagnrýnendum að David Fincher sé algjör snillingar, hann gerði margar af uppáhalds myndum. Þær eiga það sameiginlegt að vera allar mjög mismunandi. Það er ekki hægt að flokka þennan leikstjóra undir einhverri týpu af myndum.
The social network er erfitt að segja hvort sé heimildamynd eða ekki. Persónulega vissi ég ekkert um facebook málið og stofnun þess fyrr en ég sá þessa mynd.
Hún fjallar um Mark Zuckerberg og félaga hans þegar þeir stofna samskiptasíðuna facebook af þeirri ástæðu að Mark er í ,,ástarsorg" og er pirraður á að vera ekki í elítunni í Harvard. Félagarnir höfðu ekki hugmynd um hvað þeir væru að starta og veit enginn enn í dag í hvað facebook stefnir. En í myndinni eru engir vondir gæjar og engir góðir beint heldur vilja persónurnar bara ná sínum vilja í gegn.
Myndin er sett upp í kringum tvö dómsmál gegn Zuckerberg. Annars vegar dómsmál gegn honum af Winklevoss tvíburum sem vildu stofna samskiptasíðu og fengu Mark til liðs við sig en hann bjó til sína eigin síðu í staðinn. Hins vegar dómsmál sem besti vinur hans Eduardo höfðaði gegn honum vegna þáttöku sinnar í facebook fyrirtækinu. Spurningum um málið er svarað með því að fara í gegnum stofnun og fyrsta ár facebook.
Það sem er best við útgáfu þessar myndar er klárlega tímasetningin. VIð lifum á facebook öld, þar sem allir láta myndir úr síðasta partíi inn á facebook og kynnast vinum og kærustum þar. Það hafa einhvern veginn allir áhuga á facebook.Eins og alltaf þá stendur David Fincher sig fáranlega vel við gerð þessarar myndar. Það er vel ráðið í myndina. Aðalleikarinn Jesse Eisenberg stendur sig mjög vel í hlutverki Mark og er auðtrúanlegur sem stressaður tölvunördi. Það er ótrúlega ferskt að sjá leikaraliðið í þessari mynd, þetta eru ekki leikarar sem að maður sér alltaf í hverri einustu Hollywood mynd. Þar má nefna Brendu Song, Andrew Garfield og Justin Timberlake (sem sannar sig sem alvöru leikara í þessari mynd).
Hér er á ferð skemmtileg mynd, með áhugaverðum söguþræði, góðri tónlist (sérstaklega skemmtilegt að henda bítlunum inn þarna í lok myndarinnar) og góðum, ferskum, leikörum.
Með betri myndum ársins, must-see!
The Social Network fjallar um Mark Zuckerberg, manninn á bakvið Facebook. Fyrst hugsuðu örugglega flestir að það kæmi ekki vel út að gera mynd þekkta sem Facebook-myndin. En... Útkoman er …
The Social Network fjallar um Mark Zuckerberg, manninn á bakvið Facebook. Fyrst hugsuðu örugglega flestir að það kæmi ekki vel út að gera mynd þekkta sem Facebook-myndin. En... Útkoman er frábær og The Social Network setur sig á sama stall og Fight Club og Se7en.
Allir, og ég meina allir, standa sig vel og Justin Timberlake kemur skemmtilega á óvart sem hinn hressi Sean Parker. Myndin hoppar oft á milli tímaskeiða og gefur það myndinni ákveðinn stíl sem hjálpar til að gera hana skemmtilegri. Þetta er mynd sem er byggð á samtölum og handritshöfundurinn Aaron Sorkin á svo sannarlega skilið hrós!
Leikstjórnin er frábær og David Fincher sýnir aftur fram á það að hann er einn fremsti leikstjórinn í dag. Tónlistin er virkilega góð og passar vel við lágstemmda tóninn. Klippingin er góð og sömuleiðis takan.
Mæli vel með þessari, áhugaverð fyrir fólk á öllum aldri og svo er hún líka með húmor.
Það er engin spes ástæða af hverju myndin fær ekki 10, en 9 er góð einkunn fyrir góða mynd. 9/10
Ef að það er eitthvað sem David Fincher kann að gera, þá eru það góðar myndir. Byrjuninn á ferllinum hans var ekkert stórkostlegur (Fuck you Alien 3) en myndin eftir hana varð legendery,…
Ef að það er eitthvað sem David Fincher kann að gera, þá eru það góðar myndir. Byrjuninn á ferllinum hans var ekkert stórkostlegur (Fuck you Alien 3) en myndin eftir hana varð legendery, myndin Se7en. Svo eftir hana kom drasl, The Game, svo eftir hana kom góður annað legendery dæmi á stóraskjáin, Fight Club, svo kom bara góð spennumynd, The Panic Room, svo komu tvær geðveikt góðar myndir, systkynin Zodiac og The Curious Case of Benjamin Button og núna er komið annað meistaraverk, The Social Network.
Fyrst þegar ég heyrði að þegar var að gera Facebook-mynd (saywhaat?!) þá hló ég. En þegar ég fattaði að David (fokking) Fincher væri að gera hana, þá hló ég ekki eins mikið. Þegar ég sá trailerinn, þá var ég sleginn andlega í andletið með steypreiði, ég varð orðlaus. Sá myndina og ég er pretty much sjokki yfir því hvað þessi þróunarkenning mín um hvað ég hélt að myndin myndi verða varð af.
Kostir og gallar, balblabla, ég hef enga galla að segja um þessa mynd, hef ekkert að koma á framfæri um hvað lélegt sem þessi mynd hefur. Það sem hún og mun alltaf vera og það er awesomness, ekki eins awesome og Incneption, en hún er mjöög nálægt því., ef hún myndi hafa hasar þá myndi hún toppa Inception (Nei djók). Helstu kostirnir eru hvernig hún byggð, tónlistin og leikararnir, hvernig þeir meðhöndla persónurnar.
Persónurnar sjálfar eru rosalega flottar og frekar eftirminnilegar, sérstaklega Justin Timberlake. Anstyggilega djúp persóna, Justin (Bieber xD) Timberlake er maðurinn. Ég hélt fyrst að Eisenberg kunni ekki að leika, mér fannst leika sömu rulluna aftur og aftur eins og Michael Cera, en á sama árinu náðu þeir að sýna sig. Hvernig myndin er byggð reynir mjög mikið á heilan, sem gerir bara myndina einstaka.
Ef það er ehv, þá er þetta ein af betri myndum ársins og þessi mynd mun fá óskarinn fyrir annaðhvort besta klipping, tökur, aðalhlutverkið (Jesse), aukahluberkið (Justin) eða útlit.
Ég væri að ljúga ef ég myndi segja að ég væri ekki búinn að búa til ákveðnar kröfur fyrir Social Network. Ég hef ekki tekið eftir voðalega miklum áhuga í kringum myndina þar sem fólk spyr oftast „hvernig getur verið mynd um Facebook og hvað er svona áhugavert við hana?“. Þegar maður eins og David Fincher er að leikstýra mynd um Facebook, þá verður hún sjálfkrafa áhugaverð. Það er líka rangt að segja að þetta sé mynd um Facebook þar sem hún er ekki beinlínis um Facebook heldur meira um uppruna Facebook og sögu Mark Zuckerberg frá því að vera venjulegur háskólastrákur í það að vera yngsti billjónamæringur heims. David Fincher hefur leikstýrt myndum eins og Fight Club og Se7en, sem eru báðar á top 250 lista IMDB þannig að eins og ég sagði áðan, þá eru gerðar kröfur til hans. Spurning hvort hann hafi náð að uppfylla þessar kröfur með mynd um Zuckerberg og félega? Já, án efa. Ég get samt sem áður sagt að hún sé ekki fyrir alla. Það verða án efa margar stelpurnar sem fara á þessa mynd til að sjá helling af skemmtilegu facebook dóti og kannski smá farville ef þær eru heppnar. Það sem þær fá hinsvegar er 2 klukkutímar af samræðum og baksögur þungra dómsmála. Ef þú hefur alls ekki gaman af samræðu myndum þá er þessi alls ekki fyrir þig.
Ég væri að ljúga ef ég myndi segja að ég væri ekki búinn að búa til ákveðnar kröfur fyrir Social Network. Ég væri líka að ljúga ef ég myndi segja að Social Network hefði ekki komið mér á óvart. Fincher náði að uppfylla kröfurnar mína og meira en það. Myndin væri hinsvegar ekkert án leikarana og get ég með sönnu sagt að þeir eru allir frábærir hérna. Jesse Eisenberg leikur Zuckerberg með engu nema sannri snilld. Það sama má segja um alla hina leikarana. Það var engin í þessum hóp sem lét mann ekki virkilega trúa því að hann/hún væri persónan sem hann/hún leik(ur). Þó að mesti heiðurinn renni til Arnie Hammer sem lék báða Winklevoss bræðurna og lét það samt líta út fyrir að vera tveir leikarar, ótrúlegt en satt. Þetta er án efa besta frammistaða á tvíbura hlutverki frá einni manneskju síðan Parent Trap með Lindsay Lohan!
Ég væri að ljúga ef ég myndi segja að ég væri ekki búinn að búa til ákveðnar kröfur fyrir Social Network. Ég væri líka að ljúga ef ég myndi segja að Social Network hefði ekki komið mér á óvart. Ég væri enn of aftur að ljúga ef ég myndi segja að þetta væri ekki áhugaverðasta mynd sem ég hef séð á þessu ári. Ég get með sönnu sagt að það bjóst engin við því að uppruni Facebook hefði verið svona ótrúlega, ótrúlega litríkur. Auðvitað er mikið pumpað upp til að líta vel út á stóra skjánum og auðvitað einbeitir hún sér meira á stóru atriðin en þann mikla tíma sem fór í það að hann útlitið á síðunni og code-a hana, en vegna frábærs handrit gleymir hún þeim hlutum heldur ekki. En ég nefndi fyrr og nefni aftur að þetta er samræðu mynd, sem þýðir einfaldlega að það er lítið annað gert í myndinni en að tala. Handritið fær hérna STÓRAN plús fyrir að gera allar samræður í myndinni áhugaverðar, skemmtilegar, dramatískar og meiraðsegja fyndnar. Myndin byrjar meiraðsegja á einfaldri samræðu sem þróast í svo miklu meira. Myndin gerist á löngum tíma og þess vegna er einn hlutur sem ég vil setja útá, það er engin möguleiki fyrir mann að fylgjast með hvar maður er staddur í tímalínunni. Það heyrast stundum hlutir eins og „fyrir 3 mánuðum“ eða „það var fyrir 2 vikum síðan“, en þá eru kannski ekki nema 10-20 mínútur síðan sá atburður gerðist í myndinni. Ég hef ekki fleiri kvartanir, ekki eina einustu.
Einkunn : 9 – Nú þegar Inception hype-ið er loksins búið nær The Social Network að byrja óskar tímabilið á frábæran hátt og eins og staðan er núna þá vona ég innilega að Fincher fái óskarinn sem hann hefur átt skilið í langan tíma. En það gæti vel verið að eitthver önnur mynd verði betri, hver veit, það er ennþá nógur tími eftir. (Ég vil benda fólki á að Lindsay Lohan dæmið var auðvitað grín!)
Það er alltaf erfitt að vera ekki spenntur fyrir nýrri mynd eftir David Fincher, einum uppáhalds leikstjóranum mínum. Maðurinn komst í guðatölu fyrir meira en áratugi síðan og eina slapp…
Það er alltaf erfitt að vera ekki spenntur fyrir nýrri mynd eftir David Fincher, einum uppáhalds leikstjóranum mínum. Maðurinn komst í guðatölu fyrir meira en áratugi síðan og eina slappa myndin á ferilskránni er hans fyrsta, en leikstjórinn hefur víst sjálfur afneitað henni, rétt eins og flestir aðdáendur hans. Annars, þrátt fyrir að ég hafi verið mjög ánægður með seinustu þrjár myndirnar hans, þá hef ég ekki séð meistaraverk frá honum síðan Fight Club kom út, þ.e.a.s. fyrr en núna. Það gerir mig glaðan. Ofsalega!The Social Network feilar ekki á einu einasta sviði, og allt sem hún á að gera vel gerir hún meistaralega. Handritið er brilliant, sagan athyglisverð út í gegn, leikur gallalaus og leikstjórnin sömuleiðis. Þetta er mynd sem skilur fullt eftir sig og hefur ýmislegt að segja í einfaldleika sínum, og ef henni tekst að grípa þig eftir fyrstu senuna, þá finnst mér nokkuð öruggt að hún haldi þér föstum við skjáinn út restina. Hins vegar, þeir sem eru lítt hrifnir af samtalsstýrðum kvikmyndum eiga ekki eftir að ganga sáttir út. Algjör aðvörun fyrir meðaljónana.Helstu styrkleikar þessarar myndar eru þrír. Sá fyrsti er einfaldlega handritið. Þeir sem þekkja til skrifa Arons Sorkin vita það að þessi maður er nánast einn sinnar tegundar þegar kemur að díalog. Efnið sem hann hefur komið nálægt hefur kannski ekki allt verið frábært en á góðum degi eru samtöl hans svo vel skrifuð að áhorfandinn nær varla andanum á milli orða. Þessi penni er einn sá besti í bransanum og það er útaf honum að hér um bil allar senur í The Social Network eru góðar. Samræðurnar eru flugbeittar, oft mjög fyndnar en aldrei ótrúverðugar eða of góðar með sig. Handritið er aldrei að auglýsa það hvað það er snjallt eða vel skrifað og uppbyggingin er slík að það er aldrei dauður kafli. Styrkleiki nr. 2 er klippingin. Fincher tekst hér að búa til óvenju líflega mynd sem sýnir einungis fólk tala saman í tvo tíma. Ég grínast heldur ekki með það þegar ég segi að lengd hverrar senu er að meðaltali nokkrar mínútur að lengd og það setur mjög virkan stíl á flæðið og gerir það að verkum að athyglin tapast aldrei. Tónlistin gefur líka senunum rosalega gott "kikk," og á rólegu köflunum eru tónarnir oft svo drungalegir að það ýtir undir kraft myndarinnar. Þriðji styrkleikinn (ásamt mörgum, mörgum öðrum) er síðan samspil leikaranna. Allir standa sig óaðfinnanlega þótt sérstakt hrós fari til þeirra Jesse Eisenberg, Andrew Garfield (sem verður bráðum þekktur sem "nýi Spider-Man") og Justin Timberlake. Ef menn ætla virkilega að halda því ennþá fram að Timberlake geti ekki leikið, þá ætla ég að mana þá til að horfa á Alpha Dog, svo þessa og síðan halda kjafti.Ef þú ert Fincher-aðdáandi (sem gerir þig að manneskju með góðan kvikmyndasmekk) þá er þessi mynd alls ekki að fara að valda þér vonbrigðum. Jafnvel Facebook-fíklar (sem við íslendingar erum, ekki neita því!) ættu að sjá þessa mynd bara til að sjá hvað átökin á bakvið gerð og stjórn síðunnar voru áhugaverð. Það skiptir mér persónulega engu máli hvort myndin sé 100% sönn eða ekki. Heildarniðurstaðan hélt mér límdum og auk þess snýst myndin um svo margt meira en bara Facebook. Vefsíðan sjálf er í aftursætinu, sagan er um metnað, græðgi, afbrýðissemi og vináttu sem hrynur í sundur og maður þyrfti að vera gerður úr steini til að vera ekki pínu snortinn af þeirri sögu og hvernig hún spilast út.Ég skal kalla sjálfan mig Adolf ef þetta kvikmyndaár hefur ekki skánað og komið talsvert á óvart á síðustu mánuðum. Hingað til er The Social Network besta mynd sem ég hef séð á árinu ásamt Inception (kaldhæðnislega fjalla báðar þessar myndir mikið um hugmyndir) og persónulega myndi ég glaður kasta í hana haug af verðlaunastyttum, sérstaklega þessum gylltu. Ég veit að það er lúðalegt að segja þetta en ég set spikfeitt "LIKE" á myndina!10/10PS. Man einhver eftir Facebook-kommentinu hans Eisenbergs í Zombieland? Frekar fyndið að pæla í því núna þegar maður sér hann leika hér manninn sem fann upp á því.
Vann þrenn Óskarsverðlaun. Fyrir handrit, klippingu og tónlist. Tilnefnd til fimm Óskara til viðbótar, þar á meðal sem besta mynd ársins og Eisenberg sem besti leikari í aðalhlutverki.