Náðu í appið
Rio

Rio (2011)

"The bird who never learned to fly will discover a place he can soar."

1 klst 36 mín2011

Teiknimyndin Rio segir frá bláa páfagauknum Blu, en hann býr ásamt eiganda sínum í bókabúð í smábænum Moose Lake í Minnesota í Bandaríkjunum.

Rotten Tomatoes72%
Metacritic63
Deila:
Öllum leyfð Öllum leyfð

Hvar má horfa

Söguþráður

Teiknimyndin Rio segir frá bláa páfagauknum Blu, en hann býr ásamt eiganda sínum í bókabúð í smábænum Moose Lake í Minnesota í Bandaríkjunum. Hann hefur aldrei lært að fljúga en hefur hlotið ástríkt uppeldi hjá Lindu, eiganda bókabúðarinnar. Þegar Linda kemst að því að ekki aðeins eru bláir gaukar af þeirri tegund sem Blu er afar fágætir, heldur einnig að annar fugl af sömu tegund hafi fundist í Rio de Janeiro í Brasilíu leggja Linda og Blu í langt ferðalag til Suður-Ameríku, þar sem það á að para hann saman við hinn fuglinn, sem heitir Jewel. Jewel reynist afar falleg og heillast Blu umsvifalaust af henni, en hrifningin er ekki gagnkvæm, sem gerir samband þeirra afar stirt. Þegar Jewel ákveður svo að flýja vandast málin, því hún og Blu eru fest saman með keðju, auk þess sem Blu er ófleygur. Því eru góð ráð dýr þegar veiðiþjófar ná svo í skottið, eða öllu heldur stélið á þeim...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Blue Sky StudiosUS
20th Century Fox AnimationUS
20th Century FoxUS

Gagnrýni notenda (1)

Frekar góð, en hefðbundin

★★★★☆

Rio er nýjasta mynd Carlos Saldanha sem hafði áður gert allar þrjár Ice Age myndirnar. Ég hef reyndar aðeins séð fyrstu myndina sem ég hafði mjög gaman af. Hún var fyndin, hafði minnuga...