Chéri
2009
Fannst ekki á veitum á Íslandi
In a game of seduction, never fall in love.
86 MÍNEnska
51% Critics 63
/100 Chéri gerist á gullöld Frakklands á árunum fyrir fyrri heimsstyrjöldina, þar sem glæsikerrur, sveitasetur og þjónahjörð var nauðsynleg hverjum meðlimi þeirrar ríku kvenstéttar sem fylgdi konungum og milljónamæringum um allt. Ein af þeim mest áberandi af þeirri stétt var Lea de Lonval (Michelle Pfeiffer), en líf hennar tekur nýja stefnu þegar eldri vinkona... Lesa meira
Chéri gerist á gullöld Frakklands á árunum fyrir fyrri heimsstyrjöldina, þar sem glæsikerrur, sveitasetur og þjónahjörð var nauðsynleg hverjum meðlimi þeirrar ríku kvenstéttar sem fylgdi konungum og milljónamæringum um allt. Ein af þeim mest áberandi af þeirri stétt var Lea de Lonval (Michelle Pfeiffer), en líf hennar tekur nýja stefnu þegar eldri vinkona hennar, Charlotte Peloux (Kathy Bates), biður hana að sinna 19 ára gömlum syni sínum (Rupert Friend), sem Lea hefur kallað Chéri síðan hann var smábarn. Þau verða svo skyndilega og óvænt elskhugar og endist samband þeirra í heil sex ár. Því lýkur svo jafn skyndilega þegar Charlotte skipar honum aðra brúður, dóttur vinkonu sinnar. Lea er niðurbrotin manneskja við þessar fregnir, enda er hún orðin yfir sig ástfangin. En á hún og Chéri einhverja valkosti aðra en að hlíta þrýstingi samfélagsins?... minna