Náðu í appið
Boot Camp

Boot Camp (2008)

Suffer Island, Straight Edge

1 klst 39 mín2008

Myndin segir frá hópi vandræðaunglinga sem sendir eru í búðir þar sem á að aga þau og bæta.

Deila:
12 áraBönnuð innan 12 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiVímuefniVímuefniHræðslaHræðslaBlótsyrðiBlótsyrði

Söguþráður

Myndin segir frá hópi vandræðaunglinga sem sendir eru í búðir þar sem á að aga þau og bæta. Dr. Hail (Peter Stormare) er yfir búðunum, en hann lætur hvern og einn vinna dag og nótt. Standi þau sig vel hækka þau í tign, fyrst með því að breyta úr svörtum bolum yfir í gula og loks í hvíta, en þá fá þau að nýðast á hinum sem einhverskonar yfirmenn. Búðirnar eru á afskekktri eyji við Fiji. Engir veggir halda krökkunum föngnum en sjóleiðin er hættusöm og því óhentug til flótta. Það veit Sophie (Mila Kunis), en það að flýja er henni einstaklega hugleikið. Hún og kærasti hennar, Ben (Gregory Smith) reyna á flóttann en þá fyrst fá þau að kenna á því. Þegar ungur drengur drukknar við sjósundsæfingu fá Sophie og Ben nóg og ákveða að grípa til sinna ráða, sama hvað. Nauðgunum, ofbeldinu og niðurlægingunni verður að linna.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

CD FilmsCA
Edgey Productions