Aðalleikarar
Leikstjórn
Handrit
Extreme ops held ég að sé óhætt að fullyrða að sé heilalausasta afþreying sem ég hef skrifað um inn á þennan vef. Það er ekki vottur af frumlegheitum, ekki vottur af spennu og alls ekki vottur af pælingu í einu né neinu í myndinni. Eldflaugar fljúga beint út í himininn og í leiðinni lenda þær næst um því á þyrlu og svo næstum því á skíðaliftu, sem var hvergi nálægt, þetta er svona um það bil all sem þarf að segja um þessa brálæðislega góðu mynd.
Vissulega eru flott áhættuatriði í myndinni en það er bara einfaldlega ekki nóg að vera með mynd fulla af áhættuatriðum ef það er ekki vit í neinu öðru sem viðkemur henni. Ef maður vill bara sjá stunt þá er hægt að nálgast spólur sem eru uppfullar af stuntatriðum og ekki er verið að reyna að setja inn lélegan söguþráð í. Extreme ops er að þessu leiti eins og léleg klámmynd í þeim á að sleppa söguþræðinum. Smá hint til þeirra sem ætla út í þessa gerð af mynd, sleppiði söguþræðinum og haldið ykkur við klámið eða gerið þið myndina að erótískri mynd og pælið í handritinu áður en þið kvikmyndið það.
Ég ráðlegg öllum frá því að sjá þessa hörmung hún er nánast verri en allt sem kemur úr heimi Hollywood.
Mjög óspennandi mynd. Þetta átti að vera eikker hasar í þessari mynd sem mér finnst ekki þessi mynd á ekki að vera taln spennandi mynd. Eina við þessa mynd (1,5 stjarnan) eru útaf mjög fínum bretta atriðum. En restin af myndinni er ekki góð. Fín fyrir bretta áhugamenn. Ef þúrt brattakaggl/keggling þá er þetta fín mynd annars ekki. Mæli ekki með henni... Cr4cKeD
Þessi mynd flokkast örugglega undir eina af lélegustu myndum sem ég hef séð!!!!!!! Þessi mynd er með svo lélegt handrit að það ætti að kæra mannin sem bjó það til. Einnig er hún mjög óraunsæ og á flestum sviðum mjög léleg. Myndin rétt slefar í hálfa störnu bara fyrir það að áhættuatriðin eru ágætlega vel gerð og þá er ég bara að tala um áhættuatriðin EKKI handritið, leikstjórnina og leikararana. EKKI EYÐA 800 KR. Á ÞESSA MYND!!!
Mér fannst þessi mynd svo skítsæmileg og er ekki allveg sammála öðrum notendum sem hafa skrifað um þessa mynd. Það voru flott atriði í birjun eins og með hjólin og fallhlífa stökkin og svo auðvitað flott snjóbretta atriði. Mér fannst þessi mynd ekki beint góð heldur svona skemmtileg. Því gef ég henni þrjár stjörnur
Um myndina
Leikstjórn
Handrit
Timothy Scott Bogart, Mark Mullin
Aldur USA:
PG-13
Frumsýnd á Íslandi:
25. apríl 2003
VHS:
15. júlí 2003