The Help (2011)
"Change begins with a whisper"
Hin forvitna og réttláta Skeeter snýr aftur til heimabæjar síns eftir nám við virtan háskóla.
Bönnuð innan 12 ára
Fordómar
BlótsyrðiSöguþráður
Hin forvitna og réttláta Skeeter snýr aftur til heimabæjar síns eftir nám við virtan háskóla. Hún á sér þann draum að verða rithöfundur en dvöl hennar við skólann víkkaði sjóndeildarhring hennar og opnaði fyrir henni hliðar á lífinu sem voru henni huldar áður. Skeeter verður strax völd að umróti í bænum þegar hún ákveður að taka viðtöl við hörundsdökkar þjónustustúlkur sem starfað hafa fyrir ríku, hvítu fjölskyldurnar bænum. Skeeter er harðlega gagnrýnd bæði af sínum eigin vinum og öðrum sem finnst ekki viðeigandi að taka slík viðtöl. En brátt kemur þjónustustúlkan Abileen fram og samþykkir að tala við Skeeter. Þrátt fyrir að þær afli sér báðar óvinsælda með þessu skrefi halda þær ótrauðar áfram og smám saman koma fleiri þjónustustúlkur fram sem vilja segja sögu sína.
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar
Myndir
Bakgrunnsmyndir
Plaköt
Framleiðendur

Verðlaun
Tilnefnd til fimm Golden Globe-verðlauna, fimm BAFTAverðlauna og fernra Óskarsverðlauna, þ. á m. sem besta mynd ársins. Octavia Spencer hlaut Óskarinn fyrir besta meðleik.






















