Náðu í appið
Straw Dogs

Straw Dogs (2011)

"Everyone Has a Breaking Point"

1 klst 50 mín2011

David Sumner er handritshöfundur sem ákveður ásamt eiginkonu sinni, Amy, að flytja í tiltölulega afskekkt hús við Mississippiósa.

Rotten Tomatoes42%
Metacritic45
Deila:
16 áraBönnuð innan 16 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiKynlífKynlífBlótsyrðiBlótsyrði

Söguþráður

David Sumner er handritshöfundur sem ákveður ásamt eiginkonu sinni, Amy, að flytja í tiltölulega afskekkt hús við Mississippiósa. Þar vonast þau bæði til að eiga náðuga daga á meðan David vinnur að nýjasta verkefni sínu. Í fyrstu gengur allt vel fyrir utan að nokkrir vinnumenn frá nálægu þorpi, sem David fær í viðhaldsvinnu, sýnast ekki mjög áreiðanlegir. Það á svo eftir að koma í ljós að þessir menn eru sannarlega ekki traustsins verðir og áður en þau David og Amy vita af þurfa þau að búa sig undir að berjast fyrir öllu því sem þeim er heilagt. Myndin er endurgerð afr samnefndri kvikmynd Sams Peckinpah frá árinu 1971 þar sem þau Dustin Hoffman og Susan George fóru með aðalhlutverkin.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Screen GemsUS
Battleplan ProductionsUS