Náðu í appið
The Glimmer Man

The Glimmer Man (1996)

"Two good cops. One bad situation."

1 klst 32 mín1996

Jack Cole var eitt sinn leynilegur útsendari ríkisstjórnarinnar þekktur undir nafninu „The Glimmer Man“ af því að hann gat hreyft sig svo hratt og hljótt...

Rotten Tomatoes11%
Metacritic33
Deila:
16 áraBönnuð innan 16 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiBlótsyrðiBlótsyrði

Söguþráður

Jack Cole var eitt sinn leynilegur útsendari ríkisstjórnarinnar þekktur undir nafninu „The Glimmer Man“ af því að hann gat hreyft sig svo hratt og hljótt að fórnarlömb hans sáu aðeins glimmer áður en þau hnigu niður dauð. Nú er Cole hættur í njósnunum, og hefur gefið sig austurlenskum siðum á vald, og hann er mjög óvanur því að vinna með öðru fólki. Nú starfar hann sem rannsóknarlögga í Los Angelesborg, þar sem félagi hans er Jim Campbell, hörð „ekkert kjaftæði“ lögga með veikleika fyrir væmnum bíómyndum ( Casablanca er ein hans uppáhalds mynd ), auk þess sem hann hefur litla þolinmæði gagnvart nýaldarhugmyndum Cole og utangarðsmanna viðmóti. Cole og Campbell setja samt ágreining sinn til hliðar þegar þeir eru fengnir í að elta raðmorðingja sem fjölmiðlar hafa kallað „The Family Man“, eða Fjölskyldumanninn, vegna þess að hann hefur gert það að venju sinni að afgreiða heilu fjölskyldurnar í einu. En þegar síðustu fórnarlömb Fjölskyldumannsins eru fyrrum eiginkona Cole og eiginmaður hennar núverandi, þá kemst Campbell á snoðir um leynilega fortíð Cole, og þeir halda nú báðir að fyrrum yfirmenn Cole séu á einhvern hátt flæktir í málið.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

John Gray
John GrayLeikstjóri
Kevin Brodbin
Kevin BrodbinHandritshöfundur

Framleiðendur

Seagal/Nasso Productions
Warner Bros. PicturesUS

Gagnrýni notenda (1)

Steven Seagal og Keenen Ivory Wayans fara hér með aðalhlutverkin í tíbískri spennumynd. Myndin fjallar um raðmorðingja sem gengur laus og hver annar en Steven Seagal er mættur til að handleg...