Blackfish
2013
Fannst ekki á veitum á Íslandi
Frumsýnd: 25. október 2013
Never Capture What You can´t Control.
83 MÍNEnska
99% Critics 83
/100 Ári 2010 lést Dawn Brancheau, dýraþjálfari í vatnsgarðinum Sea World í Orlando, Flórída þegar háhyrningurinn Tilikum réðist á hana. Það þótti sláandi að Tilikum hafði einnig valdið dauðsfalli þjálfara árið 1991, áður en hann var keyptur í Sea World. Það er einstaklega sjaldgæft að háhyrningar ráðist á mannfólk í sínu náttúrulega umhverfi,... Lesa meira
Ári 2010 lést Dawn Brancheau, dýraþjálfari í vatnsgarðinum Sea World í Orlando, Flórída þegar háhyrningurinn Tilikum réðist á hana. Það þótti sláandi að Tilikum hafði einnig valdið dauðsfalli þjálfara árið 1991, áður en hann var keyptur í Sea World. Það er einstaklega sjaldgæft að háhyrningar ráðist á mannfólk í sínu náttúrulega umhverfi, en algengara þegar þeir eru lokaðir í kvíum og notaðir sem sýningardýr. Vísindamenn efast því um að skynsamlegt sé að halda þessum stóru, greindu dýrum föngnum til að sýna listir sínar reglulega. Kvikmyndagerðarmaðurinn Gabriela Cowperthwaite hefur rannsakað lifnaðarhætti háhyrninga allt frá því Dawn Brancheau lést og sýnir þessar merkilegu skepnur á áhrifamikinn og ögrandi máta. Einnig er varpað ljósi á hvernig hagur dýranna samræmist ekki alltaf áætlunum um rekstur og fjárhagslegan ávinning vatnagarða á borð við Sea World. ... minna