Tammy (2014)
"She hit the road. The road hit back."
McCarthy leikur konu sem fer í ferðalag með ömmu sína, sem leikin er af Susan Sarandon, í eftirdragi, eftir að hún missir vinnuna og eiginmaðurinn fer frá henni.
Bönnuð innan 12 ára
Ofbeldi
BlótsyrðiSöguþráður
McCarthy leikur konu sem fer í ferðalag með ömmu sína, sem leikin er af Susan Sarandon, í eftirdragi, eftir að hún missir vinnuna og eiginmaðurinn fer frá henni. Svekkt, sár og niðurlægð eftir atvinnumissinn og framhjáhald eiginmannsins ákveður Tammy að hún þurfi nauðsynlega að gera eitthvað nýtt. Án þess að vita hvert skal halda ákveður hún síðan að bjóða ömmu sinni Pearl (Susan Sarandon) með í ótímabundinn bíltúr eitthvað út í buskann. Pearl er alveg til í það enda hefur hún nægan tíma auk þess sem ferðalagið er um leið tækifæri fyrir hana til að detta í það, en slík tækifæri lætur hún helst ekki fram hjá sér fara. Saman halda þær svo af stað á bíl sem gerir sig líklegan til að geyspa golunni hvað úr hverju. En þegar Tammy ákveður að ræna skyndibitastað og fá sér böku í leiðinni fara hlutirnir að gerast ...
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar

Myndir
Bakgrunnsmyndir
Plaköt
Framleiðendur
























