Náðu í appið
This Is Where I Leave You

This Is Where I Leave You (2014)

"Welcome Home, Get Uncomfortable."

1 klst 43 mín2014

Þegar faðirinn deyr snúa fjögur uppkomin börn hans sem hafa lent í ýmsu í lífinu, til æskuheimilis síns og þurfa að búa undir sama þaki...

Rotten Tomatoes45%
Metacritic44
Deila:
This Is Where I Leave You - Stikla
12 áraBönnuð innan 12 ára
Ástæða:VímuefniVímuefniBlótsyrðiBlótsyrði

Hvar má horfa

Leiga
Stöð 2

Söguþráður

Þegar faðirinn deyr snúa fjögur uppkomin börn hans sem hafa lent í ýmsu í lífinu, til æskuheimilis síns og þurfa að búa undir sama þaki í eina viku, ásamt ofur ástríkri móður þeirra og samansafni maka, fyrrverandi maka og annarra hugsanlegra maka. Þau þurfa að horfast í augu við fortíðina og tengslin sín á milli. Við kynnumst hér fyrst hinum ólánssama Judd Altman sem missir bæði vinnuna og heimilið í kjölfar þess að hann kemur að eiginkonu sinni í rúminu með yfirmanninum. Ekki batnar staðan þegar faðir hans deyr skömmu síðar og Judd, sem er þjakaður af eftirsjá og biturð, þarf að eyða heilli viku á æskuheimilinu ásamt fjórum syskinum sínum og móður í samræmi við trúarhefð gyðinga og að ósk hins látna. Á þessari viku þarf fjölskyldan að taka á móti ýmsum gestum sem koma til að votta hinum látna virðingu sína og aðstandendum samúð og um leið komumst við að því að hin systkinin, þau Wendy, Phillip og Paul, glíma hvert fyrir sig við sín eigin vandamál, rétt eins og Judd, svo ekki sé talað um móður þeirra, hina lífsglöðu Hillary sem hefur aldrei átt í vandræðum með að segja meiningu sína og liggur ekki á skoðunum sínum á afkvæmunum frekar en fyrri daginn ...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Gagnrýni notenda

Engar gagnrýnir ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa gagnrýni!

Framleiðendur

Spring Creek PicturesUS
21 Laps EntertainmentUS
Warner Bros. PicturesUS