Paul Blart: Mall Cop 2 (2015)
"Vegas has a new high roller"
Eftir sex ára fórnfúst starf í verslunarmiðstöðinni ákveður öryggisvörðurinn Paul Blart að fara í frí til Las Vegas ásamt dóttur sinni og slaka dálítið á.
Bönnuð innan 6 ára
OfbeldiSöguþráður
Eftir sex ára fórnfúst starf í verslunarmiðstöðinni ákveður öryggisvörðurinn Paul Blart að fara í frí til Las Vegas ásamt dóttur sinni og slaka dálítið á. En þegar bíræfnir þjófar og glæpamenn fara á stjá kallar skyldan. Dóttir Pauls Blart, Maya, er að fara að hleypa heimdraganum og í tilefni af því ákveður Paul að taka sér loksins frí frá störfum og skreppa með henni til Las Vegas. Þar er hann fljótlega búinn að verða sér til algjörrar skammar eins og búast mátti við, enda er maðurinn alveg sérlega laginn við að gera allt rangt með tilheyrandi eignaspjöllum og vandræðum fyrir alla sem hann umgangast. En Paul fer fljótlega að leiðast í Las Vegas, enda óvanur að vera í fríi. Til allrar hamingju eru í nágrenninu nokkrir glæpamenn sem hyggjast ræna spilavíti. Þegar þeir láta til skarar skríða er Paul auðvitað fljótur að renna á lyktina og blanda sér í slaginn, glæpamönnunum til mikilla leiðinda ...
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar
Gagnrýni notenda
Skráðu þig inn til að skrifa gagnrýni
InnskráEngar gagnrýnir ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa gagnrýni!
Framleiðendur
























