Insurgent
2015
(The Divergent Series: Insurgent)
Frumsýnd: 20. mars 2015
One Choice Can Destroy You
119 MÍNEnska
28% Critics
58% Audience
42
/100 Eftir að hafa misst foreldra sína en um leið bjargað mörgum af félögum
sínum frá bráðum bana flýr Tris ásamt Caleb, Fjarka og fleirum
yfir á svæði hinna friðsömu þar sem þau þurfa að ákveða næsta leik.
Þannig hefst annar kafli sögunnar um Beatrice „Tris“ Prior í Chicago-borg
framtíðarinnar þegar borginni hefur verið skipt í fimm fylki sem hvert... Lesa meira
Eftir að hafa misst foreldra sína en um leið bjargað mörgum af félögum
sínum frá bráðum bana flýr Tris ásamt Caleb, Fjarka og fleirum
yfir á svæði hinna friðsömu þar sem þau þurfa að ákveða næsta leik.
Þannig hefst annar kafli sögunnar um Beatrice „Tris“ Prior í Chicago-borg
framtíðarinnar þegar borginni hefur verið skipt í fimm fylki sem hvert um
sig tilheyrir ákveðnum hópum. Fylkin nefnast Samlyndi, sem tilheyrir
hinum friðsömu, Bersögli, sem tilheyrir hinum hreinskilnu, Ósérplægni, þar
sem hinir óeigingjörnu halda sig, Hugprýði sem tilheyrir þeim hugrökku
og Fjölvísi sem tilheyrir þeim sem meta viskuna mest af öllu.
Þegar íbúar fylkjanna ná sextán ára aldri þurfa þeir hver fyrir sig að velja
endanlega hvaða fylki þeir vilja tilheyra, og þá hvaða hóp, en val þeirra er
óendurkræft og verður ekki breytt. Til að aðstoða unglingana við valið
eru þeir sendir í sérstakt próf, en niðurstaða þess gefur vísbendingu um
hvaða fylki þeir ættu að velja þótt valið sé endanlega á valdi hvers og eins.
Þegar Tris fór í gegnum prófið kom í ljós að hún var það
sem kallast „afbrigði“, en svo nefnast þeir sem prófið
leiðir í ljós að tilheyra fleiri fylkjum en einu. Afbrigðin eru
hins vegar eitur í beinum Jeanine, leiðtoga hinna fjölvísu,
sem hefur ákveðið að útrýma þeim fyrir fullt og allt ...... minna