The Danish Girl
2016
Frumsýnd: 29. janúar 2016
Find the courage to be yourself.
120 MÍNEnska
65% Critics 66
/100 Hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga. Tilnefnd til þrennra Golden Globe-verðlauna, fernra Óskarsverðlauna og fimm BAFTA-verðlauna. Í öllum tilfellum voru þau Eddie Redmayne og Alicia Vikander tilnefnd fyrir leikinn og fór svo að Alicia hlaut Ósk
Myndin er sönn saga Lili Elbe en hún var ein fyrsta manneskjan í sögunni til að undirgangast kynfæraaðgerð til að breyta kyneinkennum sínum. Í myndinni er rakin breytingarsaga Elbe, og hvernig það hafði áhrif á samband hennar við eiginkonuna, Gerda Wegener. Myndin gerist í Kaupmannahöfn árið 1929. Danska listakonan Gerda Wegener málar mynd af eiginmanni sínum,... Lesa meira
Myndin er sönn saga Lili Elbe en hún var ein fyrsta manneskjan í sögunni til að undirgangast kynfæraaðgerð til að breyta kyneinkennum sínum. Í myndinni er rakin breytingarsaga Elbe, og hvernig það hafði áhrif á samband hennar við eiginkonuna, Gerda Wegener. Myndin gerist í Kaupmannahöfn árið 1929. Danska listakonan Gerda Wegener málar mynd af eiginmanni sínum, Einar Wegener, í gervi konu. Þegar málverkið verður vinsælt, þá byrjar Einar að breyta sér smátt og smátt í konu og kallar sig Lili Elbe. Með ástríðu sinni og stuðningi Gerda, þá fer Elbe í fyrstu kynleiðréttingaraðgerðina sem manneskja sem fæðist í líkama karls fer í til að breyta sér í konu, en sú ákvörðun hafði mikil áhrif á hjónaband þeirra, þegar Gerda áttaði sig á að eiginmaður hennar var ekki lengur karlmaður og ekki sú persóna sem hún hafði gifst. Æskuvinur Einar, listaverkasalinn Hans Axgil, birtist síðan og til verður flókinn ástarþríhyrningur. ... minna