John Singleton í góðum gír

Næsta mynd leikstjórans John Singleton er framhaldið af hinni öflugu Boyz in the hood. Mun hún bera heitið Baby Boy, og er með Ving Rhames og Snoop Doggy Dogg í aðalhlutverkum. Fjallar hún um ungan mann, atvinnulausan sem býr heima hjá móður sinni. Hann á tvö börn með tveimur konum og virðist ekki geta átt í eðlilegu sambandi við neina konu. Besti vinur hans er að reyna að byrja aftur í klíkunni, móðir hans er byrjuð með manni sem hann þolir ekki og barnsmóðir hans er að gera hann vitlausan. Fylgjumst við með honum þroskast í gegnum myndina og verða að manni. Singleton hefur sannað sig sem ágætur kvikmyndagerðarmaður og á eflaust eftir að skila af sér góðri mynd.