Obama í spaugilegu viðtali hjá Galifianakis

Bandaríkjaforsetinn Barack Obama settist niður hjá leikaranum Zach Galifianakis í viðtalsþættinum spaugilega Between Two Ferns á dögunum.

Galifianikis hefur lengi verið með þáttinn sem er sýndur frekar óreglulega á vefsíðunni Funny or Die. Leikarinn hefur fengið til sín gesti á borð við Natalie Portman, Bradley Cooper og Ben Stiller.

Obama2ferns_2848543b

Obama þótti svara fáránlegu spurningum Galifankis oft á tíðum með skemmtilegum tilsvörum og vissi hann nákvæmlega hvað hann var að fara út í. Ljóst var þó að hann hafi nýtt sér vinsældir þáttanna með því að kynna heilbrigðsstefnuna sína.

Galifiankis byrjaði viðtalið á að afsaka sig hversu oft hann hafi hætt við viðtalið og fór svo í að spyrja forsetann um fæðingarvottorðið hans og hvaða liði hann hélt með á Ólympíuleikunum.

Hér að neðan má sjá viðtalið í heild sinni.