Febrúarhefti kvikmynda – og DVD/Blu-ray/VOD tímaritsins Myndir mánaðarins er komið út í rafrænni útgáfu. Eins og ávallt er blaðið sneisafullt af áhugaverðu efni í bland við kynningar á nýjustu myndum bíóhúsanna í febrúarmánuði, sem og nýjum myndum sem gefnar verða út á DVD, Blu-ray og/eða VOD í mánuðinum.
Á forsíðum blaðsins eru tvær myndir sem margir hafa beðið eftir með mikilli eftirvæntingu – annarsvegar Marvel ofurhetjumyndin Black Panther, sem kemur í bíó 16. febrúar, og hinsvegar glæný íslensk kvikmynd eftir Anton Jónsson, Fullir vasar, sem kemur í bíó 23. febrúar nk.
Einnig má í blaðinu sjá það nýjasta á tölvuleikjamarkaðnum og margt fleira, eins og stjörnuspá, gullkorn, bíófréttir, topplista og bíómiðaleik.