Ryan Gosling og Steve Carell spjalla á barnum í Crazy, Stupid Love

Kvikmyndir.is voru að fá í hendur nýtt Featurette úr myndinni Crazy, Stupid Love með þeim Ryan Gosling og Steve Carell í aðalhlutverkum. Í vídeóinu þá spjalla þeir félagarnir saman á barnum þar sem þeir eru staddir á tökustað, en inn á milli eru sýnd brot úr myndinni. Smellið hér til að hlusta á þá félaga, en vídeóið er undir vídeóspilaranum -aukaefni.

Myndin fjallar um Cal Weaver sem er í góðri vinnu, á fallegt hús og frábæra krakka með konu sem hann elskar. Því miður er sú kona, Emily ekki sammála um að allt sé draumi líkast og biður um skilnað. Cal veit ekki hvaðan á hann stendur veðrið. Í stefnumótaheiminum er hann hin versta risaeðla og gæti ekki verið óliprari í aðförum sínum við hitt kynið. Hann eyðir öllum lausum stundum á hverfisbarnum þar sem þrítugi glaumgosinn Jacob tekur hann upp á arma sína og gerir hann að höslfélaga. Hann tekur hann í yfirhalningu og reynir að fá hann til að lifa lífinu á ný.
Þeir tveir eru ekki þeir einu sem leita ástarinnar á röngum stöðum; þrettán ára sonur Cal er yfir sig skotinn í sautján ára barnapíu sinni, Jessicu, en hún er sjálf skotin í Cal. Jacob fellur óvænt fyrir Hönnuh, stelpu sem kærir sig kollótta um sjarma hans en gefur honum alltént séns. Og þrátt fyrir að hafa skipt um útlit til að næla sér í píur hefur Cal ekki tekist að skipta út raunverulegum tilfinningum sínum. En svona er ástin, brjáluð og heimsk.