Tökur hafnar á The Hobbit – 2 myndir af settinu!

Dagurinn sem margir bíða eftir nálgast nú óðfluga, en tökur á The Hobbit hófust í gær. Miklar tafir hafa hrjáð framleiðsluna að undanförnu en nú hefur boltinn loks byrjað að rúlla og verður ekki stoppaður. Eins og er nú orðið flestum alkunnugt mun Peter Jackson leikstýra The Hobbit, sem verður gerð að tveimur hlutum. Ian McKellen snýr aftur sem galdramaðurinn eitursvali Gandalf, en það er Martin Freeman sem fer með hlutverk Bilbo, hobbitans umtalaða.

Hér fyrir neðan má sjá tvær myndir sem voru birtar í tilefni yfirlýsingarinnar, en það sést langar leiðir að Peter Jackson er kominn aftur þangað sem hann á heima.

– Bjarki Dagur