Barbie komin í 120 milljónir

Barbie kvikmyndin er enn á toppnum á íslenska bíóaðsóknarlistanum eftir fimm vikur í sýningum. Tekjur myndarinnar um síðustu helgi námu rúmum þremur milljónum króna en myndin í öðru sæti, Teenage Mutant Ninja Turtles: Mutant Mayhem, var með tveggja milljóna tekjur.

Tekjur Barbie samanlagt á Íslandi eru nærri 120 milljónir króna, en myndin hefur slegið í gegn um allan heim.

Nýju myndirnar tvær, Sound of Freedom og Blue Beetle röðuðu sér svo í þriðja og fjórða sæti listans.

Sjáðu listann í heild sinni hér fyrir neðan: