Nýlega var gengið frá því að kvikmyndinni Bergmál eftir Rúnar Rúnarsson yrði dreift í almennar sýningar í tuttugu og fimm kvikmyndahúsum í Hollandi og geta þarlendir kvikmyndahúsagestir því barið Bergmál augum frá og með 12 desember nk. Þetta kemur fram í tilkynningu frá framleiðanda.
![](https://kvikmyndir.dv.is/wp-content/uploads/2019/11/FILMFREAK-1024x576.jpg)
Holland er samkvæmt tilkynningunni tíundi dreifingarsamningurinn sem gengið hefur verið frá og samningaviðræður við fleiri svæði standa yfir. Franska dreifingarfyrirtækið Jour2féte sér um alheimsdreifingu Bergmáls sem verður frumsýnd á vegum Senu á miðvikudaginn, 20. nóvember.
![](https://kvikmyndir.dv.is/wp-content/uploads/2019/11/ECHO_Still-2©TBC_GD-1024x540.jpg)
Bergmál hefur verið að ferðast á milli kvikmyndahátíða síðan í haust þegar myndin var heimsfrumsýnd í aðalkeppni alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Locarno í Sviss og hlot þar aðalverðlun dómnefndar unga fólksins. Nokkru seinna fékk Bergmál verðlaun fyrir bestu leikstjórn á Seminci, alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Valladolid á Spáni og síðan verðlaun Lúthersku kirkjunnar í Lubeck í þýskalandi.
Í tilkynningunni segir að Bergmál hafi fengið mikla athygli fyrir óvenjulega nálgun í frásögn. Í gegnum fimmtíu og átta sjálfstæðar senur, dregur Bergmál fram húmor, sorg og fegurð í nútíma samfélagi í aðdraganda Jóla.
Opinber söguþráður kvikmyndarinnar er eftirfarandi:
Á meðan Ísland er í óða önn að gera sig tilbúið fyrir hátíðarnar, er einkennilegt andrúmsloft að falla yfir landið og fólk finnur bæði fyrir spennu og áhyggjum. Eyðibýli stendur í ljósum logum í sveitinni, í grunnskóla eru krakkar að leika í jólasöngleik, í sláturhúsi, dángla nauta skánkar, í miðju safni stendur kona og rífst í símann, ungur strákur fær ömmu sína til að prófa nýju sýndarveruleika gleraugun sín…
Í gegnum fimmtíu og átta sjálfstæðar senur, dregur Bergmál fram húmor, sorg og fegurð í nútíma samfélagi í aðdraganda Jóla.