Ég á fótinn

Dallas stjarnan og fyrrum fyrirsætan Linda Grey hefur upplýst að það hafi verið hennar fótur sem var notaður á plakati fyrir myndina The Graduate frá 1967 þar sem Dustin Hoffman og Anne Bancroft léku aðalhlutverk.

Linda segir að hún hafi setið fyrir fyrir á myndinni og fengið 25 Bandaríkjadali í laun, en hingað til hafa menn haldið að fóturinn tilheyrði aðalleikkonunni Anne Bancroft.

Linda var í viðtali sl. þriðjudag í sjónvarpsþættinum Anderson Live þar sem hún ljóstraði upp um þetta vel geymda leyndarmál.

Á myndinni, sem er fyrir löngu orðin sígild, sést Dustin Hoffman að horfa á konu sem er að klæða sig í nælonsokk, en það eina sem sést á plakatinu er einn fótur, hönd og hluti af handlegg.

„Ég held að hún hafi verið fjarverandi þennan dag,“ sagði Grey, sem byrjaði að vinna sem fyrirsæta áður en hún sneri sér að leiklistinni. „Ég fékk 25 dali. Fyrir einn fót, það var fínt.“

Sjáðu myndband hér að neðan þar sem Linda segir frá þessu. Með henni er félagi hennar úr Dallas, Patrick Duffy.

 

video platformvideo managementvideo solutionsvideo player