Lokasería Dexter – Ný kitla!

Fyrsta kitlan er komin fyrir lokaseríuna af sjónvarpsþáttunum Dexter, þá áttundu í röðinni. Dexter fjallar um samnefndan blóðslettusérfræðing hjá lögreglunni í Miami í Bandaríkjunum og raðmorðingja sem leikinn er af Michael C. Hall.

Sjáðu kitluna hér fyrir neðan:

Serían hefst sjö mánuðum eftir að LaGuerta er myrt í seríu 7. Deb, systir Dexters, berst við að takast á við afleiðingar þess sem hún gerði og Dexter heldur áfram að vinna hjá lögreglunni og drepa fólk til skiptis. Dularfull kona kemur í vinnu hjá Miami Metro með nýjar upplýsingar um fortíð Dexter.

Sýningar á seríunni hefjast í Bandaríkjunum 30. júní nk.

 

Stikk: