Náðu í appið

Dial M for Murder 1954

Fannst ekki á veitum á Íslandi

If a woman answers...hang on for dear life!

105 MÍNEnska
Rotten tomatoes einkunn 90% Critics
The Movies database einkunn 75
/100

Hin auðuga Margot Mary Wendice átti stutt ástarævintýri í London með bandaríska rithöfundinum Mark Halliday, á meðan eiginmaður hennar, atvinnu-tennisleikarinn Tony Wendice var á keppnisferðalagi. Tony hætti að spila til að helga sig hjónabandinu og fær sér venjulega vinnu. Hún ákveður að gefa honum og hjónabandi þeirra annað tækifæri. Þegar Mark kemur... Lesa meira

Hin auðuga Margot Mary Wendice átti stutt ástarævintýri í London með bandaríska rithöfundinum Mark Halliday, á meðan eiginmaður hennar, atvinnu-tennisleikarinn Tony Wendice var á keppnisferðalagi. Tony hætti að spila til að helga sig hjónabandinu og fær sér venjulega vinnu. Hún ákveður að gefa honum og hjónabandi þeirra annað tækifæri. Þegar Mark kemur frá Bandaríkjunum til að heimsækja hjónin, þá segir Margot honum að hún hafi eytt öllum bréfunum frá honum nema einu, sem var stolið. Það var síðan kúgað út úr henni fé útaf bréfinu, en hún fékk aldrei bréfið sjálft í hendur. Tony kemur heim, og segir að hann þurfi að vinna og biður Margot um að fara með Mark í leikhúsið. Á meðan hringir Tony í Lesgate höfuðsmann ( sem heitir öðru nafni Charles Alexander Swann og var með honum í skóla ) og kúgar hann til að myrða eiginkonu sína, þannig að hann geti erft auðævi hennar. En enginn glæpur er fullkominn, og hlutirnir fara ekki eftir áætlun.... minna

Aðalleikarar


Fyrrverandi tenniskappi (Ray Milland) sem sestur er í helgan stein, undirbýr það sem á að vera fullkomið morð á eiginkonu sinni (Grace Kelly) sem hefur átt í framhjáhaldi með ungum rithöfundi (Robert Cummings) en er til eitthvað sem heitir fullkomið morð? Frábært handrit, fínir leikarar og frábær leikstjórn meistara Hitchcock einkenna þessa mynd og það er ekki að ástæðulausu að hún hefur verið endurgerð 2 sinnum, fyrst fyrir sjónvarp árið 1981 þar sem Christopher Plummer, Angie Dickinson og Anthony Quayle voru í aðalhlutverkum og svo aftur árið 1998 undir nafninu A Perfect Murder með Michael Douglas og Gwyneth Paltrow en sú upprunalega er langbest af þeim auk þess sem hinar tvær hafa ekki fallegustu leikkonu ever innanborðs þ. e. hina yndislegu Grace Kelly.
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei

Ray Milland fer hér á kostum í hlutverki hraðlygins þrjóts, sem vill eiginkonu sína, Grace Kelly, feiga til að geta tryggt sér auðæfi hennar eftir að hafa komist á snoðir um framhjáhald hennar. Einstaklega skemmtileg Hitchcock mynd sökum frumlegs handrits leikritaskáldsins Frederick Knotts og góðs leiks þeirra Millands og Kellys. Eins og svo margar aðrar myndir Hitchcocks hefur hún verið endurgerð nokkrum sinnum með misjöfnum árangri, nú síðast undir heitinu A Perfect Murder með Michael Douglas í aðalhlutverki. Allar standa þessar endurgerðir þó mynd Hitchcocks langt að baki, enda var gamli meistarinn enginn aukvisi á sínu sviði.
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei
Skrifa gagnrýni
Senda inn

Svipaðar myndir


Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn