Vönduð og margslungin mynd frá Sayles. Sonur lögreglustjóra kemur aftur í gamla heimabæinn til að taka við starfinu sem pabbi gamli gengdi en erfitt reynist að feta í hans fótspor. Rannsó...
Lone Star (1996)
"John Sayles invites you to return to the scene of the crime."
Sam Deeds er lögreglustjóri í Rio County í Texas.
Bönnuð innan 16 ára
Ofbeldi
Kynlíf
BlótsyrðiSöguþráður
Sam Deeds er lögreglustjóri í Rio County í Texas. Hann lifir í skugganum af föður sínum heitnum, sem var hinn virti fyrrum lögreglustjóri Buddy Deeds, sem tók við starfinu af hinum spillta Charlie Wade. Sam átti aldrei gott samband við föður sinn, sérstaklega á unglingsárunum, þegar Buddy bannaði honum að vera með fallegri spænskættaðri stúlku, Pilar Cruz. Sam er nú kallaður út til að rannsaka 40 ára gamla beinagrind sem fannst í eyðimörkinni og eftir því sem Sam kafar dýpra ofaní drungaleg leyndarmál bæjarins, þá byrjar hann að komast að fleiri og fleiri leyndarmálum um föður sinn. Eftir því sem Sam púslar saman brotunum í ráðgátunni um dularfulla líkið, þá byrjar hann einnig að reyna að endurvekja samband sitt við gömlu kærustuna.
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar

Gagnrýni notenda (1)
Skráðu þig inn til að skrifa gagnrýni
InnskráFramleiðendur






















