ABBA: The Movie - Fan Event (1977)
ABBA: The Movie
"The MUSIC! The SONGS! The MAGIC! The COLOUR! The MAGNIFICENCE!"
ABBA: The Movie er leikstýrð af Lasse Hallström sem tók upp efni myndarinnar á tónleikaferðalagi ABBA í Ástralíu árið 1977.
Bönnuð innan 9 áraSöguþráður
ABBA: The Movie er leikstýrð af Lasse Hallström sem tók upp efni myndarinnar á tónleikaferðalagi ABBA í Ástralíu árið 1977. Myndin fer með þig til baka til áttunda áratugsins þegar diskóið réði ríkjum og ABBA naut heimsfrægðar. Upplifðu baksviðsupptökur og flutninga í fullri lengd á nokkrum af bestu smellum ABBA en þar má nefna „Dancing Queen“, „SOS“, „Name Of The Game“ og „Waterloo“. ABBA: The Movie veitir einstaka og sjaldgæfa sýn á hljómsveitina á hátindi ferilsins ásamt fullt af stórkostlegum aukaatriðum m.a. frá ABBA: Voyage tónleikunum í London og innsýn í ABBA safnið í Stokkhólmi. Um er að ræða heimildarmynd með grín ívafi þar sem plötusnúður reynir að ná á tali við hljómsveitina og á sama tíma gerir lífvörður hljómsveitarinnar allt sem í hans valdi stendur til að koma í veg fyrir að það gerist.















