David Arquette leikur Gordie og Scott Caan leikur Sean i þessari braðfyndnu gamanmynd sem Brian Robbins (Varsity Blues) leikstyrir. Með heilann i hauslas og miklar væntingar, ætla Gordie og Sean ...
Ready to Rumble (2000)
"Sometimes two heads are simply more than one."
Gordie Boggs og Sean Dawkins eru tveir grjótharðir en nautheimskir aðdáendur heimsmeistarans í fjölbragðaglímu, Jimmy King.
Bönnuð innan 12 ára
Kynlíf
BlótsyrðiSöguþráður
Gordie Boggs og Sean Dawkins eru tveir grjótharðir en nautheimskir aðdáendur heimsmeistarans í fjölbragðaglímu, Jimmy King. Þegar þeir fara að sjá King verja titilinn í bardaga við Diamond Dallas Page, þá verða þeir vitni að ósigri hans með óheiðarlegum brögðum, og því þegar hann er svo rekinn úr keppni af forseta keppninnar, Titus Sinclair. Eftir að bílinn þeirra bilar á leiðinni heim þá ákveða þeir að leita að King og hefna fyrir ósanngjarnt tap hans og brottrekstur. Þeir finna King og telja hann á að fara aftur í hringinn og endurheimta titilinn. King kemur í glímuhöllina ásamt Gordie og Sean, og King og Page lendir saman eftir að allt verður brjálað í höllinni. Þetta verður til þess að Sinclair gerir við hann samning: ef honum tekst að vinna Page í næstu keppni, þá fær hann titilinn aftur ásamt einni milljón Bandaríkjadala, en ef hann tapar, þá mun hann aldrei framar fá að keppa í WCW keppninni. Gordie og Sean hjálpa King að undirbúa sig undir þennan gríðarlega mikilvæga bardaga.
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar


Gagnrýni notenda (1)
Skráðu þig inn til að skrifa gagnrýni
InnskráFramleiðendur



























