Er þetta bara ég eða eru aðalsöguhetjurnar alveg eins teiknaðar og Dimitrí og Anastasía? En jæja, þetta er ágætis mynd, spennandi og rómantísk og allt það...
Titan A.E. (2000)
"Get ready for the human race"
Þúsund árum inn í framtíðina, nánar tlitekið árið 3028, verður Jörðin fyrir árás Dreja, sem eru geimverur búnar til úr hreinni orku.
Bönnuð innan 6 ára
Ofbeldi
HræðslaSöguþráður
Þúsund árum inn í framtíðina, nánar tlitekið árið 3028, verður Jörðin fyrir árás Dreja, sem eru geimverur búnar til úr hreinni orku. Móðurskip Drej eyðir jörðinni með orkugeisla, en nokkur hundruð geimskipt ná að sleppa frá Jörðinni með síðustu íbúa Jarðar innanborðs. Einn af þeim sem sleppur er ungur sonur Sam, Cale, sem er með hring sem faðir hans gaf honum. Fimmtán árum síðar vinnur Cale á björgunarstöð, lífið er erfitt og hann hatar pabba sinn fyrir að hafa horfið um borð í Titan fyrir löngu síðan. Þar sem mannkynið er án heimaplánetu, þá hafa eftirlifandi Jarðarbúar orðið að sætta sig við það að vera flakkarar í geimnum, og þeir verða fyrir stöðugu einelti og árásum frá öðrum geimverum. Yfirmaður að nafni Joseph Korso og flugmaður hans Akima, finna Cale, og útskýra að hann verði að hjálpa þeim að finna Titan, en þar um borð er búnaður sem mun skapa nýja Jörð og þar með sameina allt mannkyn. Á sama tíma þá vilja Drejar finna Titan til að eyða því. Með hjálp Korso, þá uppgötvar Cale að hringurinn sem faðir hans gaf honum inniheldur erfðafræðilega dulkóðað kort sem leiðir til Titan, og þar með hefst kapphlaup yfir alheiminn með Korso og skipi hans og áhöfn, þar á meðal Preed, sniðugum manngervli í rottulíki, Gune, furðulegum grænum vísindamanni, og Stith, grjóthörðum vopnasérfræðingi sem lítur út eins og kengúra. Áður en langt um líður þá komast Cale og Akima að því að Korso er að leita að Titan til að geta komið því í hendur Dreja.
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar


Aðrar myndir


Gagnrýni notenda (6)
Skráðu þig inn til að skrifa gagnrýni
InnskráÞessi teiknimynd er mjög góð og vel gerð, góð tónlist og góður söguþráður. Ég mæli eindregið með þessari mynd!
Titan A.E. Þessari mynd beið ég með eftirvæntingu, en hún olli hún mér ekki vonbrigðum, samt þá hefði hún geta verið betri. Söguþráðurinn var óskup venjulegur Sci-Fi Mynd, í þessu...
20th Century Fox hefur lengi reynt að koma sér inn á teiknimyndamarkaðinn sem Disney hefur stjórnað svo lengi sem elstu menn muna. Fyrsta alvörutilraunin var Anastasia, sem var svona la-la, en ...
Framleiðendur




















