Náðu í appið
Highlander: Endgame

Highlander: Endgame (2000)

Highlander 4

"It will take two immortals to defeat the ultimate evil. But in the end, there can be only one."

1 klst 27 mín2000

Þegar Connor Macleod sér sinn gamla vin Rachel deyja í sprengingu, þá fær hann nóg af því að vera ódauðlegur og hinum ævarandi sársaka sem...

Rotten Tomatoes11%
Metacritic21
Deila:
16 áraBönnuð innan 16 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiKynlífKynlíf

Söguþráður

Þegar Connor Macleod sér sinn gamla vin Rachel deyja í sprengingu, þá fær hann nóg af því að vera ódauðlegur og hinum ævarandi sársaka sem það hefur í för með sér fyrir hann og ástvini hans. Hann læsir sjálfan sig inni á helgum stað þar sem ódauðlegir sem eru orðnir leiðir á lífinu geta flúið til, og einnig til að tryggja að Verðlaunin falli ekki í rangar hendur. En gamall óvinur, Jacob Kell, og hópur leigumorðingja hans, ræðst á helgistaðinn og drepur alla þar nema Connor, en hann er þvingaður til að koma út undir bert loft til að berjast. Kell og Connor voru eitt sinn vinir, og þekktust vel þegar Connor var vísað úr Glenfinnan; en hann sneri aftur þegar hann frétti að brenna ætti móður hans á báli, en í tilraun til að bjarga henni, þá drap Connor Kell, sem varð ódauðlegur, bitur og fullur haturs, og einsetti sér það að gera líf Connor að helvíti á jörð. Víkur nú sögunni aftur að nútímanum, en óþokkar Kell, þar á meðal Kate, gömul ástkona Duncan sem vill hefna sín fyrir að hafa óviljandi verið gerð ódauðleg fyrir mörgum öldum síðan, ráðast á Duncan Macleaod, ættingja Connor. Árásin tengdist eitthvað Connor, og Duncan fer að leita að honum til að komast að því afhverju. Á leiðinni þá kemst hann að því að á þessum 450 árum síðan Connor og Kell áttust við í Glenfinnan, þá hefur Kell afhöfðað meira en 600 manns, sem gerir hann að kraftmesta ódauðlega manninum í heiminum. Það sem gerir málin enn verri er að hvorki Connor né Duncan eru nógu sterkir til að mæta Kell einir.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Aðrar myndir

Gillian Horvarth
Gillian HorvarthHandritshöfundur
William H. Panzer
William H. PanzerHandritshöfundur

Framleiðendur

Davis-Panzer ProductionsUS
Dimension FilmsUS
Highlander ProductionsGB

Gagnrýni notenda (3)

★☆☆☆☆

Einn dag sumarið 2003 horfði ég á sjónvarpið,ég rak augu á þessa mynd og ég vildi horfa á hana. Ég vildi bara horfa á hana að því að mynd nr 1 er með Queen lögum og gat ég heyrt...

Ok þetta var hryllingur. Hugmyndin orðin útslitin og leikarinnir lítu út fyrir að vera útslitnir líka. Það vottar ekki fyrir leik í þessari mynd. Sem sagt algjör þjáning upp á að horf...

★☆☆☆☆

Algerlega óskiljanlegt að aðstandendur fyrstu Highlander-myndarinnar skuli halda áfram að nauðga minningunni um hana með að framleiða svona einskisvert drasl. Myndin er vonlaus í alla staði...