Náðu í appið
City Hall

City Hall (1996)

"Murder...Corruption...Cover-up...Scandal..."

1 klst 51 mín1996

Fyrir ungan hugsjónamann eins og Kevin Calhoun, aðstoðarborgarstjóra í New York, er tilveran annaðhvort í svörtum eða hvítum lit, en í augum gamalreynds stjórnmálamanns eins...

Rotten Tomatoes60%
Metacritic62
Deila:
12 áraBönnuð innan 12 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiHræðslaHræðsla

Söguþráður

Fyrir ungan hugsjónamann eins og Kevin Calhoun, aðstoðarborgarstjóra í New York, er tilveran annaðhvort í svörtum eða hvítum lit, en í augum gamalreynds stjórnmálamanns eins og Johns Pappas borgarstjóra einkennist lífið hins vegar af mismunandi grátónum. Saman takast þeir félagar harðsnúnir á við borgarpólitíkina, glæpi og fátækt, og hárfín samvinna þeirra minnir helst á vel smurða vél. Þeir ganga frá samningum, byggja upp sambönd, takast á við fjölmiðlana, safna fé, ráða fram úr ágreiningsmálum og viðhalda vinsældum borgarstjóraembættisins. En morgun einn lætur sex ára gamalt blökkubarn lífið fyrir byssukúlu í átökum lögreglumanns og eiturlyfjasala, og grunsamlegir atburðir sem leiddu til uppgjörs þeirra verða þess valdandi að það hriktir í stoðum Ráðhússins.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Castle Rock EntertainmentUS