Náðu í appið
The Breakfast Club

The Breakfast Club (1985)

"They only met once, but it changed their lives forever."

1 klst 37 mín1985

Fyrir utan það að vera í sama bekk í Shermer miðskólanum í Shermer, Illinois, þá eiga þau Claire Standish, Andrew Clark, John Bender, Brian Johnson...

Rotten Tomatoes87%
Metacritic66
Deila:
6 áraBönnuð innan 6 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiBlótsyrðiBlótsyrði

Söguþráður

Fyrir utan það að vera í sama bekk í Shermer miðskólanum í Shermer, Illinois, þá eiga þau Claire Standish, Andrew Clark, John Bender, Brian Johnson og Allison Reynolds fátt sameiginlegt, en einnig eru þarna þau Claire og Andrew, sem eiga engin samskipti við aðra nemendur. Claire er prinsessan og Andrew er íþróttagaurinn, John er glæpamaðurinn, Brian er heilinn, og Allison er skrýtna stelpan. En það eina sem sameinar þau núna er að þau þurfa að sitja eftir í níu klukkustundir í bókasafni skólans laugardaginn 24. mars, 1984, undir stjórn Hr. Vernon, sem stjórnar þeim frá skrifstofunni hinum megin við ganginn. Hvert þeirra á að skrifa ritgerð sem á að vera að lágmarki eitt þúsund orð um hver þau halda að þau séu. Í fyrstu, ef þau skrifa þá nokkuð, mætti ætla að þau skrifuðu um það hvernig heimurinn sæi þau, og hvað þau hafa verið heilaþvegin í að trúa um sjálf sig. En byggt á þeim ævintýrum sem þau lenda í þessa níu tíma, þá munu þau sjá sjálf sig í algjörlega nýju ljósi.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Universal PicturesUS
A&M FilmsUS
Channel Productions

Gagnrýni notenda (2)

★★★★★

The Breakfast club gerist á laugardegi að vori til árið 1984 í gagnfræðiskóla í Shermer Illinois og aðalsöguhetjurnar eru fimm ólíkir unglingar(Judd Nelson, Emilio Estevez, Molly Ringwald...