Náðu í appið
Che: Part Two

Che: Part Two (2008)

2 klst 15 mín2008

Che: Part Two tekur upp þráðinn þar sem honum sleppir í Che: Part One og hefst árið 1965, þar sem bylting fylgismanna Fidels Castro hefur...

Rotten Tomatoes80%
Metacritic64
Deila:
12 áraBönnuð innan 12 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiHræðslaHræðslaBlótsyrðiBlótsyrði

Söguþráður

Che: Part Two tekur upp þráðinn þar sem honum sleppir í Che: Part One og hefst árið 1965, þar sem bylting fylgismanna Fidels Castro hefur borið árangur og ný stjórn er sest við völd á Kúbu. Ernesto „Che“ Guevara unir hins vegar ekki lengi við sem stjórnmálamaður og segir fljótlega af sér ráðherraembætti sínu til að fara í leyni til Bólivíu og breiða byltinguna út þangað. Eftir að hann kemur til La Paz í Bólivíu seint árið 1966 hefst hann handa við að safna saman uppreisnarher, líkt og gert var á Kúbu, og árið 1967 hefst hernaður hans gegn herforingjastjórn landsins. Hins vegar gengur ekki jafn vel þar eins og á Kúbu, þar sem hann hefur yfir of fáum mönnum að ráða, heilsa hans verður stöðugt verri, auk þess sem stór hluti íbúanna deilir ekki skoðunum hans og hugsjónum. Þar að auki leggur Bandaríkjaher Bólívíumönnum til stuðning og vopn til að berjast gegn Che og félögum hans, sem brátt virðast vera að berjast vonlausri baráttu...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Wild BunchFR
Laura Bickford ProductionsUS
Morena FilmsES
Telecinco CinemaES