Two Lovers
2008
Fannst ekki á veitum á Íslandi
Frumsýnd: 17. apríl 2009
Sometimes we leave everything to find ourselves.
110 MÍNEnska
82% Critics 74
/100 Leonard Kraditor er afskaplega lánlaus maður og er nokkurn veginn brunninn út þegar hann flytur heim til foreldra sinna þegar unnustan hans yfirgefur hann. Hann hjálpar foreldrunum, sem eru innflytjendur, við að reka þvottahúsið sitt í Brooklyn, hann tekur ljósmyndir í frítíma sínum en er algerlega rótlaus og veltir því jafnvel fyrir sér að taka eigið líf.... Lesa meira
Leonard Kraditor er afskaplega lánlaus maður og er nokkurn veginn brunninn út þegar hann flytur heim til foreldra sinna þegar unnustan hans yfirgefur hann. Hann hjálpar foreldrunum, sem eru innflytjendur, við að reka þvottahúsið sitt í Brooklyn, hann tekur ljósmyndir í frítíma sínum en er algerlega rótlaus og veltir því jafnvel fyrir sér að taka eigið líf. Skyndilega taka þó örlögin í taumana þegar hann hittir tvær heillandi konur með stuttu millibili. Önnur þeirra, Sandra, er dóttir viðskiptafélaga foreldra sinna. Hún er hreinskilin og beinskeytt, en mjög munúðarfull á sama tíma. Hin er Michelle, nágrannakona hans. Hún er óræð, rótlaus eins og Leonard, skemmtileg og algerlega ófáanleg. Hún er nefnilega ástfangin af giftum manni og sér eingöngu vinaöxl til að gráta á í Leonard á meðan Sandra vill „bjarga“ honum. Getur Leonard ráðið fram úr vandamálum sínum án þess að særa Söndru eða Michelle?... minna