Náðu í appið
Everybody's Fine

Everybody's Fine (2009)

1 klst 39 mín2009

Myndin segir frá Frank Goode (De Niro), fullorðnum manni sem er nýbúinn að missa eiginkonuna sína og því orðinn ekkill.

Rotten Tomatoes47%
Metacritic47
Deila:
Öllum leyfð Öllum leyfð

Söguþráður

Myndin segir frá Frank Goode (De Niro), fullorðnum manni sem er nýbúinn að missa eiginkonuna sína og því orðinn ekkill. Kemst hann fljótlega að því að eina tenging hans við börnin sín var í gegnum eiginkonuna og þegar hann fær slæmar fréttir frá lækninum sínum ákveður hann að endurnýja tengslin við fjölskylduna. Það á hins vegar eftir að vinda upp á sig, því honum gengur mjög illa að svo mikið sem sjá David, son sinn, á mjög vandræðalegan fund með dóttur sinni, Amy (Beckinsale), kemst að því að hinn sonurinn, Robert (Rockwell), er ekki hljómsveitarstjóri eins og hann hélt, og leggur svo loks af stað til Las Vegas til að hitta dótturina Rosie (Barrymore), sem býr þar. Brátt fer hann að gruna að ekki aðeins hafi Robert logið til um atvinnu sína, heldur séu öll börnin að ljúga að honum. Af hverju svo er veit hann hins vegar ekki...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

MiramaxUS
Hollywood Gang ProductionsUS
Radar PicturesUS