Náðu í appið
The Town

The Town (2010)

Prince of Thieves

"Welcome to the bank robbery capital of America."

2 klst 3 mín2010

Í Boston eru árlega framin yfir 300 bankarán.

Rotten Tomatoes92%
Metacritic74
Deila:
The Town - Stikla
16 áraBönnuð innan 16 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiBlótsyrðiBlótsyrði

Söguþráður

Í Boston eru árlega framin yfir 300 bankarán. Flestir þeirra sem hafa lifibrauð sitt af bankaránum búa í sama hverfinu, Charlestown. Einn þeirra er Doug MacRay (Ben Affleck), en hann er ekki af sama meiði og hinir þjófarnir. Doug átti möguleika á heiðarlegu lífi, tækifæri á að feta ekki í fótspor föður síns í glæpastarfsemi, en kaus heldur að fara fyrir flokki harðsvíraðra bakaræningja sem hirða allt sem á vegi þeirra verður og skilja ekki eftir nein spor. Eina fjölskylda Doug eru félagar hans í glæpagenginu, sérstaklega hinn hættulegi Jem (Jeremy Renner) sem er Doug sem bróðir. Allt breytist hinsvegar í síðasta verkefni þeirra félaga þegar þeir taka bankastarfsmanninn Claire Keesey (Rebecca Hall) sem gísl. Eftir ránið komast þeir að því að Claire býr í Charlestown og til að fullvissa sig að Claire hafi ekki þekkt til þeirra fer Doug og leitar Claire uppi. Claire hefur enga hugmynd um að kynni þeirra Doug eru ekki af tilviljun og enn síður að Doug hélt henni í gíslingu aðeins viku áður. Þau fella hugi saman og Doug hyggst segja skilið við glæpalífið og gömlu félagana en þegar lögreglan kemst á slóð þeirra þá stendur Doug frammi fyrir erfiðri ákvörðun; að svíkja félaga sína að missa konuna sem hann elskar.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Peter Craig
Peter CraigHandritshöfundur
Aaron Stockard
Aaron StockardHandritshöfundur

Gagnrýni notenda (3)

Traustur þriller

★★★★☆

The Town fjallar um líf bankaræningja í Charlestown, Boston og fókusar aðallega á Doug MacRay, leiðtoga bankaræningjahóp. Meira ætla ég ekki að gefa frá. Myndin byrjar sterk með banka...

Merkin eru skýr, Affleck er með þetta!

★★★★☆

Ég man þá tíð þegar Ben Affleck var í skömmustulega litlu áliti á meðal hörðustu kvikmyndaáhugamanna. Þetta væga hatur átti sér stað einhvern tímann á eftir Dogma, á undan Gone B...

Ekki alveg

★★★☆☆

The Town hefur verið að fá glimrandi dóma en ég er ekki algjörlega sama sinnis. Hún skarar ekkert fram úr á neinn hátt og inniheldur ófrumlega sögu og líflausar persónur. Ben Afflek er a...

Framleiðendur

Legendary PicturesUS
GK FilmsGB
Thunder RoadUS
Warner Bros. PicturesUS