Náðu í appið
Women in Trouble

Women in Trouble (2009)

1 klst 32 mín2009

Women in Trouble inniheldur nokkra söguþræði sem hver vefst utan um hinn á ýmsa vegu.

Rotten Tomatoes29%
Metacritic43
Deila:
16 áraBönnuð innan 16 ára
Ástæða:KynlífKynlífBlótsyrðiBlótsyrði

Söguþráður

Women in Trouble inniheldur nokkra söguþræði sem hver vefst utan um hinn á ýmsa vegu. Nokkrar konur í Los Angeles búa allar yfir viðkvæmum leyndarmálum. Maxine (Sarah Clarke) er sálfræðingur sem kemst að því að maðurinn hennar er að halda framhjá sér með Addy (Caitlin Keats), en hún er móðir eins sjúklings hennar, hinnar þrettán ára Charlotte (Isabella Gutierrez). Addy og systirin Doris (Connie Britton) hafa svo á móti leynt Charlotte því hver raunveruleg móðir hennar sé. Klámleikkonan Holly (Adrianne Palicki) á góða vinkonu, Bambi (Emmanuelle Chriqui), en hefur aldrei þorað að segja henni hvað henni finnst í raun um hana, á meðan önnur leikkona, Elektra (Carla Gugino), uppgötvar að hún er ólétt en hefur ekki sagt barnsföðurnum sannleikann. Föst lyfta, bílslys, ókyrrð í háloftunum, flugfreyja, barþjónn með haglabyssu og nuddari verða svo til þess að sannleikurinn skal út með einum eða öðrum hætti.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Gato Negro Films