Náðu í appið
Animals United

Animals United (2010)

Dýrafjör

1 klst 33 mín2010

Hið árlega flóð lætur á sér standa á Okavango sléttunni í Afríku.

Deila:
Öllum leyfð Öllum leyfð

Hvar má horfa

Streymi
Disney+
Leiga
Stöð 2

Söguþráður

Hið árlega flóð lætur á sér standa á Okavango sléttunni í Afríku. Vatnið er af skornum skammti og stutt í blóðugu baráttu um síðustu dropana. Jarðkötturinn Billy vill sanna sig fyrir syni sínum, Junior, og heldur því af stað í leit að vatni með besta vini sínum, Socrates, sem er ímyndunarveikt ljón. Á leiðinni hitta þeir fyrir ólíklegustu dýr, sem öll leita nýrrar búsetu þar sem heimili þeirra hafa eyðilagst í eldsvoðum, olíulekum eða öðrum slysum af völdum manna. Billy kemst að því hvers vegna vatnið hefur ekki enn flætt um sléttuna. Búið er að byggja stíflu til að mynda uppistöðulón í virkjun sem á að búa til næga orku fyrir lúxushótel. Þeir félagar leggja á ráðin um að ráðast inn og eyða virkjuninni en Socrates er fangaður í búr og á að senda hann til Las Vegas í sýningu. Þá ríður á að dýrin standi saman til að leysa vin sinn úr prísundinni og binda enda á vatnsvanda sléttunnar áður en allt er um seinan.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Ambient EntertainmentDE
Constantin FilmDE