Náðu í appið
Öllum leyfð

Nowhere in Europe 2009

(Kein Ort)

Fannst ekki á veitum á Íslandi

Frumsýnd: 12. nóvember 2011

98 MÍNÞýska
Best Documentary- Pravo Ljudski Human Rights Film Festival Sarajevo 2010 Special Mention of the Jury- Watch Docs Warsaw 2010.

Hér er á ferðinni áhrifamikil heimildarmynd um áhrif evrópskrar innflytjendastefnu á fjóra flóttamenn frá Tsjetsjeníu. Eftir að hafa flúið átökin í heimalandi sínu standa þeir andspænis nýjum vandamálum þegar þeir sækja um hæli í Evrópu. Þeir þurfa að færa sönnur fyrir því hverjir þeir eru og hvað hefur hent þá. Myndin sýnir vel hversu... Lesa meira

Hér er á ferðinni áhrifamikil heimildarmynd um áhrif evrópskrar innflytjendastefnu á fjóra flóttamenn frá Tsjetsjeníu. Eftir að hafa flúið átökin í heimalandi sínu standa þeir andspænis nýjum vandamálum þegar þeir sækja um hæli í Evrópu. Þeir þurfa að færa sönnur fyrir því hverjir þeir eru og hvað hefur hent þá. Myndin sýnir vel hversu maðurinn má sín oft lítils gagnvart ríkisbákninu. Leikstjórinn Kerstin Nickig fylgir fjórmenningunum eftir í eitt ár og á þeim tíma þurfa þeir að sigrast á margvíslegum hindrunum til að geta hafið nýtt líf með fjölskyldum sínum í Evrópu. Áhorfandanum er veitt innsýn í drauma þeirra, ótta og þrá til að lifa hefðbundnu lífi. Ali er 39 ára blaðamaður sem bíður eftir úrskurði yfirvalda í Póllandi um hælisumsókn. Í reykmettuðu herbergi í flóttamannamiðstöðinni sem hann dvelur á, hefur Ali nægan tíma til að koma hugsunum sínum á blað. Hugsunum um Evrópu og þær vonlausu aðstæður sem hann er í. Wacha sem er 50 ára hefur verið veitt hæli í Austurríki en sonur hans býr í Rússlandi þar sem hann sætir lögsókn. Við fylgjumst með baráttu Wacha til að fá son sinn. Tamara er 55 ára gömul og býr í Vín ásamt eiginmanni og fatlaðri dóttur sem þarf á aðkallandi læknisaðstoð að halda, en brottvísun fjölskyldunnar úr landi virðist óumflýjanleg. Hinn 33 ára gamli Ruslan er fastur í Úkraínu, án húsaskjóls eða atvinnu. Hann vonast til að geta flutt með fjölskyldu sína til Vestur- Evrópu eins fljótt og auðið er. Myndin er gerð til heiðurs rúmlega 100.000 Tsjetsjenum sem hafa flúið átökin í heimalandi sínu.... minna

Aðalleikarar

Leikstjórn

Handrit

Skrifa gagnrýni
Senda inn

Tengdar fréttir

24.10.2011

Amnesty International stendur fyrir kvikmyndaveislu

Eftirfarandi er fréttatilkynning frá Amnesty International á Íslandi. Amnesty International, í samstarfi við Bíó Paradís, stendur fyrir kvikmyndadögum dagana 3.-13. nóvember næstkomandi. Áhorfendum kvikmyndadaga er boðið ...

Svipaðar myndir



Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn