Salmon Fishing in the Yemen
2011
Fannst ekki á veitum á Íslandi
Frumsýnd: 25. maí 2012
Að gera hið ómögulega mögulegt.
111 MÍNEnska
68% Critics 58
/100 Myndin er byggð á samnefndri metsölubók breska rithöfundarins Paul Torday. Hér segir frá arabíska sjeiknum Muhammed sem eftir að hafa prófað og heillast af laxveiði í Skotlandi fær þá flugu í höfuðið að landar hans í Yemen fái að reyna sig í sportinu í eyðimörkinni í heimalandi hans. Hann ákveður að kosta öllu til og láta drauminn rætast.... Lesa meira
Myndin er byggð á samnefndri metsölubók breska rithöfundarins Paul Torday. Hér segir frá arabíska sjeiknum Muhammed sem eftir að hafa prófað og heillast af laxveiði í Skotlandi fær þá flugu í höfuðið að landar hans í Yemen fái að reyna sig í sportinu í eyðimörkinni í heimalandi hans. Hann ákveður að kosta öllu til og láta drauminn rætast. Málið kemst síðan alla leið inn á borð skoska líffræðingsins Alfreds Jones sem er fljótur að afskrifa hugmyndina með öllu, enda vonlaust að lax geti lifað við þær aðstæður sem yemensk náttúra hefur upp á að bjóða. En útsendarar sjeiksins gefast ekki upp og þegar málið vekur athygli blaðafulltrúa breska forsætisráðuneytisins, sem sér í því góða sögu frá Austurlöndum „sem ekki inniheldur sprengingar“, neyðist Alfred til að taka það til nánari skoðunar. Það verður honum líka hvatning til að fara í málið að hann fellur fyrir töfrum talskonu sjeiksins í London, hinnar lífsglöðu Harriet, sem endurgeldur áhugann ...... minna