Náðu í appið
Bönnuð innan 16 áraMyndin getur valdið ótta hjá eða er ógnvekjandi fyrir ung börn

On the Road 2012

Frumsýnd: 5. apríl 2013

The best teacher is experience.

124 MÍNEnska
Rotten tomatoes einkunn 46% Critics
The Movies database einkunn 56
/100

Myndin fjallar um ungan rithöfund, Sal Paradise, en líf hans fer í uppnám þegar hinn frjálslyndi Dean Moriarty og kærasta hans, Marylou, koma inn í líf hans. Þau ferðast saman yfir þver Bandaríkin, og hitta allskonar fólk sem hefur áhrif á þau á ferðalaginu. On the Road er byggð á víðfrægri sögu Jacks Kerouac um ferðalag hans um Bandaríkin á fjórða... Lesa meira

Myndin fjallar um ungan rithöfund, Sal Paradise, en líf hans fer í uppnám þegar hinn frjálslyndi Dean Moriarty og kærasta hans, Marylou, koma inn í líf hans. Þau ferðast saman yfir þver Bandaríkin, og hitta allskonar fólk sem hefur áhrif á þau á ferðalaginu. On the Road er byggð á víðfrægri sögu Jacks Kerouac um ferðalag hans um Bandaríkin á fjórða og fimmta áratug síðustu aldar og kynni hans af ýmsu fólki á því ferðalagi. Hér er hinni svonefndu „beat“-kynslóð skálda gerð góð skil, en þetta var hópur rithöfunda og ljóðskálda sem óx úr grasi eftir heimsstyrjöldina síðari í skugga mannfórna stríðsins og upphafs kommúnistaofsókna McCarthy-ismans. En þetta var líka upphaf nýrra skilgreininga á bókmenntum og listum, þar sem jasstónlist, frjálsar ástir og uppgötvun nýrra vímuefna var fyrirferðarmikill hluti dagsins. Fyrir utan Jack Kerouac teljast þeir William S. Burroughs og Allen Ginsberg hafa staðið fremstir í flokki beat-kynslóðarinnar, en þeir koma báðir talsvert við sögu í myndinni og eru leiknir af þeim Viggo Mortensen og Tom Sturridge. On the Road er virkilega áhugaverð mynd um mannlíf sem segja má að hafi verið upphaf hippamenningarinnar.... minna

Aðalleikarar

Skrifa gagnrýni
Senda inn

Svipaðar myndir


Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn