Hope Springs
2012
Frumsýnd: 19. október 2012
Hvað lifir lengi í gömlum glæðum?
100 MÍNEnska
75% Critics 65
/100 Hér segir frá þeim Kay og Arnold sem hafa verið hjón í 31 ár og komið tveimur börnum á legg. Óhætt er að segja að eftir allan þennan tíma sé lítið „fútt“ eftir í sambandi hjónanna og grámygla hversdagsins allsráðandi í samlífi þeirra. Við þetta á Kay erfitt með að sætta sig, öfugt við Arnold sem virðist ekkert hafa við tilbreytingaleysið... Lesa meira
Hér segir frá þeim Kay og Arnold sem hafa verið hjón í 31 ár og komið tveimur börnum á legg. Óhætt er að segja að eftir allan þennan tíma sé lítið „fútt“ eftir í sambandi hjónanna og grámygla hversdagsins allsráðandi í samlífi þeirra. Við þetta á Kay erfitt með að sætta sig, öfugt við Arnold sem virðist ekkert hafa við tilbreytingaleysið að athuga. Svo fer að Kay sannfærir Arnold um að það gæti orðið þeim sjálfum og hjónabandi þeirra til góðs að skreppa í vikulangt frí til bæjarins Hope Springs og sækja þar námskeið hjá sálfræðingi sem hefur sérhæft sig í hjónabandsráðgjöf ...... minna