Above the Law
1988
Fannst ekki á veitum á Íslandi
He was a covert agent trained in Vietnam. He has a master 6th degree black belt in Aikido... and family in the Mafia. He's a cop with an attitude. / He's a cop who believes no one is above the law.
99 MÍNEnska
50% Critics 45
/100 Nico Toscani er ítalskur innflytjandi, bandarískur föðurlandsvinur, fyrrum leyniþjónustumaður, Aikido meistari, og lögreglumaður sem ekki bindur bagga sína sömu hnútum og samferðamennirnir. Hann er metnaðarfullur í starfi og unnandi réttlætisins. Þegar alríkislögreglan FBI skipar sveit hans að horfa framhjá dularfullri sendingu hernaðargagna sem sveitin tók... Lesa meira
Nico Toscani er ítalskur innflytjandi, bandarískur föðurlandsvinur, fyrrum leyniþjónustumaður, Aikido meistari, og lögreglumaður sem ekki bindur bagga sína sömu hnútum og samferðamennirnir. Hann er metnaðarfullur í starfi og unnandi réttlætisins. Þegar alríkislögreglan FBI skipar sveit hans að horfa framhjá dularfullri sendingu hernaðargagna sem sveitin tók af alræmdum eiturlyfjasala, þá ákveður Nico að rannsaka málið upp á eigin spýtur. Með hjálp félaga síns Jax, þá beinist rannsóknin að flóknum vef kaþólskra presta, ólöglegra innflytjenda og þrautþjálfaðra leigumorðingja, til að koma lögum yfir eiturlyfjahring sem er stjórnað beint úr innsta hring leyniþjónustunnar CIA, af manni að nafni Zagon Henry Silva. Nico man eftir þessum manni frá dögum sínum í CIA í Víetnam, þegar Zagon notaði stofnunina ( og stríðið ) til að fela smygl sitt á ópíum. Á þeim tíma var Nico ekki nógu hátt settur til að koma í veg fyrir framferði hans, en nú mun hann ekki lengur þola að láta Zagon misnota aðstöðu sína til að komast hjá saksókn - sérstaklega núna þegar Zagon hefur lagt á ráðin um að myrða bandaríska öldungadeildarþingmann. Zagon er kannski yfir flest lög hafin, en ekki lög Nicos. ... minna