Fyndið Bull
Ég er persónulega ekki helsti aðdáendi Steve Martins en í réttu hlutverki er hann yndislega fyndinn eins og í þessari mynd. The man with two brains fjallar um heilaskurðalækni sem að len...
"Steve Martin Is A World Famous Surgeon. He Invented Screw Top, Zip Lock Brain Surgery. Trust Him."
Heilaskurðlæknirinn Dr.
Bönnuð innan 6 ára
Ofbeldi
HræðslaHeilaskurðlæknirinn Dr. Michael Hfuhruhurr fann upp hina byltingarkenndu höfuðkúpu-skrúfutækni, en syrgir núna fráfall elskulegrar eiginkonu sinnar Rebecca. Á meðan hann hugsar um hana á leiðinni heim í bílnum, þá gleymir hann sér eitt augnablik og ekur á hina fallegu en stórhættulegu Dolores Benedict. Hfuhruhurr gerir á henni skurðaðgerð sem bjargar lífi hennar, en þegar hún nær sér eftir aðgerðina þá áttar Hfuhruhurr sig ekki á því að Dolores er gullgrafarekvendi, er einungis á eftir peningum eiginamanna sinna, en hún kom fyrri eiginmanni í gröfina, en hann lést af völdum heilablóðfalls. Nú leitar hún að nýju fórnarlambi og Hfuhruhurr er tilvalinn kandidat. Þau gifta sig en Dolores neitar lækninum um að þýðast hann í bólinu, sem pirrar Hfuhruhurr mikið. Hann fer með Dolores í brúðkaupsferð til Austurríkis, þar sem hann hittir kollega sinn, heilaskurðlækninn Dr. Necessiter sem á mikið safn af heilum í rannsóknarstofu sinni. Dolores notar tæknifærið og heldur framhjá eiginmanni sínum, og þegar Hfuhruhurr kemst að því þá losar hann sig við hana. En í rannsóknarstofu Necessiter, þá heillast Hfuhruhurr að heila Nr. 21, Ann Uumellmahaye, sem hann á samskipti við með hugsanaflutningi. Hér er nokkuð ljóst að um samband er að ræða þar sem maður heillast af konu eingöngu vegna persónuleika hennar, en ekki líkama, en heilinn hrörnar hratt; Hfuhruhurr verður að vera fljótur að finna líkama og flytja heilann í hann sem allra fyrst til að bjarga Ann.

Ég er persónulega ekki helsti aðdáendi Steve Martins en í réttu hlutverki er hann yndislega fyndinn eins og í þessari mynd. The man with two brains fjallar um heilaskurðalækni sem að len...
Þetta er nú meiri vitleysan. Ég meina: VÁ! Þetta er ein fyndansta og sniðugasta vitleysa sem ég hef séð það er. The Jerk teamið er komið aftur hér og gerir gamanmynd sem er í raun ek...
Klikkaðasta gamanmynd Steve Martin fjallar um heilaskurðlækni sem heitir Dr. Michael Hfuhruhurr. Hann fellur fyrir sjúklingi sínum sem Kathleen Turner leikur en þrátt fyrir fegurð hennar þá ...